Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, segir í Morgunblaðinu í dag, að honum hafi komið á óvart að Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB tengi saman makríldeiluna og aðildarumsóknina.
Auðvitað kemur Steingrími J. þetta ekki á óvart. Auðvitað veit hann nákvæmlega hvernig mál standa innan veggja ESB. Ef hann vissi það ekki væri hann gersamlega óhæfur til að gegna ráðherrastörfum eða öðrum trúnaðarstörfum fyrir íslenzku þjóðina.
Það er kominn tími til að Steingrímur J. hætti svona leikaraskap. Hann fer honum illa. Össur er miklu betri í þessu en Steingrímur.
Spurningin er þessi: Grípur Steingrímur J. nú tækifærið eins og margir flokksmenn hans vona og gera ráð fyrir og notar makríldeiluna til að brjóta blað í aðlögunarferlinu og losa sig út úr því banvæna faðmlagi við Samfylkinguna ( eins og spáð var hér á þessum vettvangi í gær) eða gerir hann svikasamninga um makrílinn í haust.
Það fer eftir því hversu mikill þrýstingur verður frá grasrótinni í VG hvora leiðina hann velur.
Kannski almennir flokksmenn í VG ættu að hefja undirskriftasöfnun til að veita formanni sínum nauðsynlegt aðhald?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Var Steingrímur J. samvinnuþýðari við Maríu?
Breyttur tónn Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB í garð Íslendinga vegna makrílmálsins hefur vakið athygli. Nú er hún með hnefann á lofti. Hvað ætli valdi? Sumir, eins og Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar, telja að Damanaki liggi undir þrýstingi frá þingmönnum á Evrópuþinginu, sem vel má vera og ekki ólíklegt.
Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum
Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknarflokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.
Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins
Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunarstjóra ESB, halda áfram.
Er það óvirðing við Alþingi að standa við gefin loforð við kjósendur?
Í umræðum manna á meðal má heyra því haldið fram, að Alþingi sé óvirðing gerð með því að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, hafi látið það verða sitt fyrsta verk að fara til Brussel og tilkynna framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, að hlé hafi verið gert á aðildarviðræðum Íslands. Þetta er skrýtin röksemd. Kosningar fóru fram til Alþingis í lok apríl.