Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Kjördæmaheimsóknir þingmanna þungbærar fyrir Jóhönnu og Steingrím J.


6. júlí 2012 klukkan 10:15

Hlutskipti forystumanna stjórnarflokkanna verður erfitt, þegar kemur fram í ágúst. Nú eru þingmenn að heimsækja kjördæmi sín og tala við fólk. Þegar þeir snúa aftur til höfuðborgarinnar fara þeir að bera saman bækur sínar og telja má víst að það verði allt á einn veg. Þeir hafi ekkert heyrt nema bullandi óánægju með ríkisstjórnina og þingmenn VG munu alveg sérstaklega heyra djúpstæða reiði sinna kjósenda vegna svika flokksins í ESB-málum.

Þrýstingur innan Samfylkingar á Jóhönnu Sigurðardóttur um að tilkynna formlega um áform sín verður orðinn óbærilegur bæði fyrir hana og flokkinn, þegar líður á september. Flokksmönnum er ljóst að það þjónar engum tilgangi að halda framtíðarforystumálum Samfylkingar í óvissu.

Þingmenn VG munu bera þau boð, að flokkurinn missi kjósendur í stórum stíl á landsbyggðinni vegna svika í ESB-málum og að ekki muni staðan batna ef líka verði svikið í makríldeilunni.

Sumarið verður „annus horribilis“ fyrir formenn stjórnarflokkanna, svo notað sé orðalag Bretlandsdrottningar af öðru tilefni.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Rétt ákvörðun menntamála­ráðherra í málefnum RÚV

Það er rétt hjá Illuga Gunnarssyni, menntamála­ráðherra, að þingkjörin stjórn Ríkisútvarpsins er lýðræðislegri aðferð við að stjórna þeirri stofnun en val­nefndarfyrirkomulagið, sem var í aðsigi. Þótt val­nefndarskipan geti litið vel út á pappírnum býður það kerfi upp á að klíkuskapur í þeim samtökum, sem þar koma að málum ráði ferðinni.

Var Steingrímur J. samvinnuþýðari við Maríu?

Breyttur tónn Maríu Damanaki, sjávar­útvegs­stjóra ESB í garð Íslendinga vegna makrílmálsins hefur vakið athygli. Nú er hún með hnefann á lofti. Hvað ætli valdi? Sumir, eins og Birgir Ármannsson, formaður utanríkis­mála­nefndar, telja að Damanaki liggi undir þrýstingi frá þingmönnum á Evrópu­þinginu, sem vel má vera og ekki ólíklegt.

Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum

Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknar­flokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis­ráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.

Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins

Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis­ráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunar­stjóra ESB, halda áfram.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS