Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Er Árni Páll of mikill vinur formanna Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks?


11. júlí 2012 klukkan 11:00
Árni Páll Árnason

Stuðningsmönnum Jóhönnu Sigurðardóttur innan Samfylkingar er ekki rótt um þessar mundir. Þeir hafa horft til Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra sem eftirmanns hennar í formennsku Samfylkingar. Nú er hins vegar tvennt að gerast, sem truflar þau áform. Annars vegar hefur einhver hópur innan flokksins áhuga á að Stefán Ólafsson, prófessor gefi kost á sér til formennsku og þá mundi sá hópur, sem staðið hefur að baki Jóhönnu sundrast. Hins vegar stendur þeim ógn af framboði Árna Páls Árnasonar.

Að sumu leyti eru þeir Stefán og Árni Páll fulltrúar andstæðra sjónarmiða. Stefán er jafnaðarmaður af gamla skólanum, kannski má orða það svo að hann sé af elzta skólanum. Árni Páll boðar stefnubreytingu að einhverju leyti á svipuðum nótum og Tony Blair, þegar hann barðist til áhrifa innan brezka Verkamannaflokksins. Guðbjartur er hins vegar líklegur til að þræða milliveginn.

Og hvað gera andstæðingar Árna Páls til að draga úr stuðningi við hann?

Þeir dreifa út sögum um að hann sé sérstakur vinur formanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eins og sjá má í DV í dag!

Það hefur löngum verið hættulegt í íslenzkri pólitík að geta talað við andstæðingana.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Rétt ákvörðun menntamála­ráðherra í málefnum RÚV

Það er rétt hjá Illuga Gunnarssyni, menntamála­ráðherra, að þingkjörin stjórn Ríkisútvarpsins er lýðræðislegri aðferð við að stjórna þeirri stofnun en val­nefndarfyrirkomulagið, sem var í aðsigi. Þótt val­nefndarskipan geti litið vel út á pappírnum býður það kerfi upp á að klíkuskapur í þeim samtökum, sem þar koma að málum ráði ferðinni.

Var Steingrímur J. samvinnuþýðari við Maríu?

Breyttur tónn Maríu Damanaki, sjávar­útvegs­stjóra ESB í garð Íslendinga vegna makrílmálsins hefur vakið athygli. Nú er hún með hnefann á lofti. Hvað ætli valdi? Sumir, eins og Birgir Ármannsson, formaður utanríkis­mála­nefndar, telja að Damanaki liggi undir þrýstingi frá þingmönnum á Evrópu­þinginu, sem vel má vera og ekki ólíklegt.

Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum

Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknar­flokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis­ráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.

Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins

Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis­ráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunar­stjóra ESB, halda áfram.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS