
Margir hafa orðið til þess að túlka úrslit forsetakosninganna á þann veg, að þar væri fyrst og fremst um að ræða mótmæli gegn núverandi ríkisstjórn. Fólk hafi fundið í forsetakosningunum farveg til þess að koma andúð sinni á ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna á framfæri.
Ef þessi túlkun á úrslitum forsetakosninganna er rétt er hún mikið umhugsunarefni fyrir stjórnarflokkana báða.
Þá eru líkurnar á því að flokkarnir bíði afhroð í þingkosningum vorið 2013 enn meiri gangi þeir til þeirra kosninga undir óbreyttri forystu.
Og þá fækkar enn þeim þingmönum stjónarflokkanna, sem eiga afturkvæmt á þing.
Hvernig bregðast þeir við?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Var Steingrímur J. samvinnuþýðari við Maríu?
Breyttur tónn Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB í garð Íslendinga vegna makrílmálsins hefur vakið athygli. Nú er hún með hnefann á lofti. Hvað ætli valdi? Sumir, eins og Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar, telja að Damanaki liggi undir þrýstingi frá þingmönnum á Evrópuþinginu, sem vel má vera og ekki ólíklegt.
Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum
Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknarflokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.
Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins
Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunarstjóra ESB, halda áfram.
Er það óvirðing við Alþingi að standa við gefin loforð við kjósendur?
Í umræðum manna á meðal má heyra því haldið fram, að Alþingi sé óvirðing gerð með því að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, hafi látið það verða sitt fyrsta verk að fara til Brussel og tilkynna framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, að hlé hafi verið gert á aðildarviðræðum Íslands. Þetta er skrýtin röksemd. Kosningar fóru fram til Alþingis í lok apríl.