Í vangaveltum, sem nú breiðast út í fjölmiðlum um pólitíska framtíð þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar er að sjálfsögðu fjallað um þessi mál út frá sjónarhóli flokksmanna í Samfylkingu og VG.
En hvernig ætli málið horfi við út frá sjónarhorni stjórnarandstöðuflokkanna? Hver er óskaforysta þeirra hjá þessum tveimur flokkum, ef svo má að orði komast?
Það er augljóst.
Forystumenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eiga þá ósk heitasta að Jóhanna haldi áfram hjá Samfylkingu og Steingrímur J. hjá VG.
Hvers vegna?
Vegna þess að þeim mun meira afhroð bíður stjórnarflokkanna í næstu þingkosningum.
Nýir formenn fyrir báðum flokkum hefðu þó alla vega meiri möguleka á að ná flokkunum á strik en núverandi formenn þeirra.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart ESB?
Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þingflokkur VG styðji núverandi ríkisstjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.
Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar
Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...
Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir
Forsvarsmenn Evrópusambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikisstjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku samfélagi.
Hver verða viðbrögð fráfarandi stjórnarflokka?-Hafa þeir allt á hornum sér?
Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig forystusveitir Samfylkingar og Vinstri grænna bregðast við stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar. Ef að líkum lætur munu þeir hafa allt á hornum sér. Með því munu þeir ekki styrkja sjálfa sig heldur hina nýju stjórnarflokka. Fólkið í landinu vill að þeir fái tækifæri til að sýna að þeir geti staðið við stóru orðin.