Föstudagurinn 24. maí 2013

Grasrótin í VG er að rísa upp!


16. júlí 2012 klukkan 10:25

Eins og búast mátti við er grasrótin í VG farin að láta til sín heyra vegna ESB að því er fram kemur í frétt í Morgunblaðinu í dag.

Gísli Árnason, formaður VG í Skagafirði segir:

„Hljóðið í Vinstri grænum í Skagafirði er verulega þungt. Ég held að flokkurinn fái slæma útreið í næstu kosningum og þá ekki aðeins úti á landi. Því var treyst sem forystan sagði um ESB. Það stendur ekki steinn yfir steini.“

Andrés Rúnar Ingason, formaður VG í Árborg segir:

„Ég finn vel fyrir því að fólk vill niðurstöðu í málið áður en gengið verður til kosninga.“

Friðrik Aspelund, ritari VG í Borgarbyggð „telur mikinn meirihluta flokksmanna VG í Borgarbyggð vilja fara leið Ögmundar og kjósa um málið samhliða næstu þingkosningum.“

Grasrótin í VG hefur þetta mál í hendi sér. Hún hefur valdið vilji hún beita sér.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkis­stjórnar­innar gagnvart ESB?

Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þing­flokkur VG styðji núverandi ríkis­stjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.

Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar

Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðar­dóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...

Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir

Forsvarsmenn Evrópu­sambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikis­stjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku sam­félagi.

Hver verða viðbrögð fráfarandi stjórnar­flokka?-Hafa þeir allt á hornum sér?

Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig forystusveitir Samfylkingar og Vinstri grænna bregðast við stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkis­stjórnar. Ef að líkum lætur munu þeir hafa allt á hornum sér. Með því munu þeir ekki styrkja sjálfa sig heldur hina nýju stjórnar­flokka. Fólkið í landinu vill að þeir fái tækifæri til að sýna að þeir geti staðið við stóru orðin.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS