Laugardagurinn 25. maí 2013

Sumir Samfylkingar­menn vilja ekki láta bjóða sér vinnubrögð Steingríms J.


19. júlí 2012 klukkan 09:52
Kristrún Heimisdóttir

Í gær var spurt hér Í pottinum, hvort Samfylkingin mundi láta bjóða sér að nýr ráðuneytisstjóri í atvinnuvegaráðuneyti yrði ráðinn án auglýsingar í ljósi þeirrar áherzlu, sem sá flokkur hefur lagt á opið og gagnsætt ferli í embættaveitingum hjá hinu opinbera.

Í Fréttablaðinu í dag kemur í ljós að sumir Samfylkingarmenn a.m.k. vilja ekki láta bjóða sér slík vinnubrögð. Blaðið birtir grein eftir Kristrúnu Heimisdóttur, fyrrum aðstoðarmann Ingibjargar Sólrúnar og síðar Árna Páls Árnasonar um málið en í lok greinarinnar segir Kristrún:

„Hvernig getur nokkur maður treyst því framvegis að ekki ráði persónusamningurinn við einstaklinginn á ráðherrastóli umfram allt annað? Að handabandið sé taumur? Finnst forsætisráðherra að við það skuli allir una?“

Væntanlega svarar Jóhanna Sigurðardóttur þessari spurningu flokkssystur sinnar, þótt hún sé náinn samstarfsmaður Árna Páls Árnasonar en spurningin er hvort Steingrímur J. hlustar nokkuð á Jóhönnu.

Þarf hann þess?

Hefur VG ekki Samfylkinguna í hendi sér þegar hér er komið sögu?

Á Samfylkingin ekki allt orðið undir því að Steingrímur J. snúi ekki við blaðinu í ESB-málum?

Hann getur selt loforð um að gera það ekki dýru pólitísku verði!

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Hvert er hlutverk Samfylkingar?-Er hún á sömu leið og PASOK í Grikklandi?

Í fréttum Evrópu­vaktarinnar í dag kemur fram, að fyrrverandi menntamálaráherra PASOK (flokks sósíalista) Anna Diamantopoulo hyggist segja sig úr flokknum. Hún segir að það sé engin ástæða lengur fyrir því að PASOK lifi.

Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkis­stjórnar­innar gagnvart ESB?

Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þing­flokkur VG styðji núverandi ríkis­stjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.

Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar

Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðar­dóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...

Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir

Forsvarsmenn Evrópu­sambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikis­stjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku sam­félagi.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS