Hvers konar flokkur er Framsóknarflokkurinn í dag? Er hann flokkur landsbyggðarinnar? Landbúnaðarins? Samvinnuhreyfingarinnar? Er hann hægri flokkur? Hvað er hann?
Þetta eru áleitnar spurningar, sem skipta máli vegna þess, að líkurnar eru að verða meiri en minni á því, að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur myndi saman næstu ríkisstjórn.
Halldór Ásgrímsson gerði tilraun til að breyta Framsóknarflokknum úr dreifbýlisflokki í þéttbýlisflokk m.a. með misheppnaðri stefnumörkun í ESB-málum. Honum mistókst.
Undir forystu Guðna Ágústssonar varð hann flokkur dreifbýlis og landbúnaðar á ný fyrst og fremst vegna ímyndar Guðna sjálfs.
En hvers konar flokkur er Framsóknarflokkur Sigmundar Davíðs?
Að sumu leyti er Sigmundur Davíð sá íslenzkra stjórnmálaforingja sem er opnastur fyrir nýjum hugmyndum.
En sá jákvæði eignleiki hefur ekki enn orðið til þess að það sé orðið skýrt í hugum kjósenda hvers konar flokkur Framsóknarflokkurinn er í dag.
Skýrari og skarpari ásýnd er það sem flokkurinn þarf til að ná árangri í kosningum.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Hvert er hlutverk Samfylkingar?-Er hún á sömu leið og PASOK í Grikklandi?
Í fréttum Evrópuvaktarinnar í dag kemur fram, að fyrrverandi menntamálaráherra PASOK (flokks sósíalista) Anna Diamantopoulo hyggist segja sig úr flokknum. Hún segir að það sé engin ástæða lengur fyrir því að PASOK lifi.
Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart ESB?
Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þingflokkur VG styðji núverandi ríkisstjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.
Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar
Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...
Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir
Forsvarsmenn Evrópusambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikisstjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku samfélagi.