Laugardagurinn 25. maí 2013

Getur þetta verið?!


24. júlí 2012 klukkan 09:21
NASA

Getur verið að sami maður sé skipulagsráðgjafi Langanesbyggðar og jafnframt talsmaður Huang Nubo, kínverska auðjöfursins?

Þetta virðist nánast óhugsandi en i frétt efst á forsíðu Morgunblaðsins í dag segir:

„Halldór Jóhannsson, skipulagsráðgjafi Langanesbyggðar og talsmaður Huang Nubo hefur unnið framtíðarskipulag fyrir Vopnafjörð og nágrenni. Er þar m.a. gert ráð fyrir 15.000 manna byggð við Þórshöfn, stórum flugvelli þar og stórskipahöfn í Finnafirði.“

Það er gott að menn eru stórhuga fyrir austan en er ekki hætta á einhverjum hagsmunaárekstrum?

???

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkis­stjórnar­innar gagnvart ESB?

Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þing­flokkur VG styðji núverandi ríkis­stjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.

Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar

Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðar­dóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...

Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir

Forsvarsmenn Evrópu­sambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikis­stjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku sam­félagi.

Hver verða viðbrögð fráfarandi stjórnar­flokka?-Hafa þeir allt á hornum sér?

Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig forystusveitir Samfylkingar og Vinstri grænna bregðast við stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkis­stjórnar. Ef að líkum lætur munu þeir hafa allt á hornum sér. Með því munu þeir ekki styrkja sjálfa sig heldur hina nýju stjórnar­flokka. Fólkið í landinu vill að þeir fái tækifæri til að sýna að þeir geti staðið við stóru orðin.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS