
Sjálfsagt hafa margir lesendur Evrópuvaktarinnar í gær stöðvað við þær hliðstæður, sem fram koma í frásögn af handtökum þriggja æðstu manna Anglo Irish Bank og ákærum á hendur þeim og því, sem fram hefur komið hér um markaðsmisnotkun bankanna fyrir hrun.
Írarnir þrír eru ákærðir fyrir að hafa lánað einum þekktasta kaupsýslumanni Írlands á þeim tíma og meðlimum fjölskyldu hans peninga til að kaupa hlutabréf í bankanum í því skyni, að halda uppi hlutabréfaverði í honum.
Eitt af því, sem er til rannsóknar hér eru einmitt lánveitingar bankanna til fyrirtækja eða félaga, sem notuðu svo peningana til að kaupa hlutabréf í bönkunum sjálfum.
Hver lærði af hverjum!
Og svo er náttúrlega þar með til staðar athyglisverður alþjóðlegur samanburður á skilvirkni réttarkerfa hér og þar.
Hvað taka slíkar rannsóknir og niðurstöður þeirra miklu lengri tíma hér en t.d. á Írlandi?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Rétt ákvörðun menntamálaráðherra í málefnum RÚV
Það er rétt hjá Illuga Gunnarssyni, menntamálaráðherra, að þingkjörin stjórn Ríkisútvarpsins er lýðræðislegri aðferð við að stjórna þeirri stofnun en valnefndarfyrirkomulagið, sem var í aðsigi. Þótt valnefndarskipan geti litið vel út á pappírnum býður það kerfi upp á að klíkuskapur í þeim samtökum, sem þar koma að málum ráði ferðinni.
Var Steingrímur J. samvinnuþýðari við Maríu?
Breyttur tónn Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB í garð Íslendinga vegna makrílmálsins hefur vakið athygli. Nú er hún með hnefann á lofti. Hvað ætli valdi? Sumir, eins og Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar, telja að Damanaki liggi undir þrýstingi frá þingmönnum á Evrópuþinginu, sem vel má vera og ekki ólíklegt.
Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum
Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknarflokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.
Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins
Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunarstjóra ESB, halda áfram.