Pólitíkin er öðrum þræði sandkassaleikur, hvort sem sá sandkassi er á smáeyju norður í höfum eða hjá heimsveldunum.
Mitt Romney, sem er í framboði til að verða forseti í Bandaríkjunum kann sig ekki. Hann kemur til London og er boðið í Downingstræti en segir fyrst við bandaríska sjónvarpsstöð, að honum lítist nú eiginlega ekkert á þetta með Olympíuleikana, það sé eiginlega allt í klessu. (Þetta er efni málsins en ekki bein þýðing!).
Þá kemur Cameron, forsætisráðherra Breta og segir að það sé nú munur á því, hvort leikarnir séu haldnir í stórborg eða einhvers staðar, þar sem enginn sé.
Þetta túlka stjórnendur Salt Lake City, sem héldu vetrarólympíuleika, sem Romney stjórnaði sem móðgun við sig og sína borg.
Vísbending um það sem koma skal?!
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Hvar og hvenær missti framkvæmdastjórn ESB jarðsambandið?
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávarútvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðum
Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnarmyndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnarmyndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.
Stjórnarmyndun langt komin - og ekkert fréttist!
Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru komnir langt með stjórnarmyndun sína án þess, að nokkuð sem máli skipti hafi frétzt af þeim viðræðum. Þetta er ekki lítið afrek í samfélagi nútímans. Oftast- en ekki alltaf- hafa viðræður af þessu tagi verið hriplekar. Ekki að þessu sinni.
Opinber greinargerð um stöðu ríkisfjármála á að verða fyrsta verk nýs fjármálaráðherra
Í kjölfar háværra mótmæla fráfarandi ráðherra Samfylkingar um að þeir hafi engu leynt um stöðu ríkisfjármála er nauðsynlegt að eitt af fyrstu verkum nýs fjármálaráðherra verði að upplýsa þjóðina um hina raunverulegu stöðu.