Sunnudagurinn 26. maí 2013

Er Össur hræddur um sig?


3. ágúst 2012 klukkan 09:11
Össur Skarphéðinsson á blaðamannafundi í Brussel.

Breytingar á ríkisstjórnum valda alltaf áhyggjum þeirra ráðherra sem fyrir eru. Þeir eru yfirleitt ekki í rónni fyrr en þær eru afstaðnar. Þeir eru alltaf hræddir um að breytingarnar snúi að þeim. Þetta er að gerast núna innan Samfylkingarinnar.

Katrín Júlíusdóttir er að koma úr fæðingarorlofi. Væntanlega fær hún sæti í ríkisstjórninni á ný. Hvernig gerist það? Fer Oddný út? Eða kannski einhver annar?

Það eru á kreiki sögusagnir um að Össur Skarphéðinsson sé hræddur um eigin stöðu. Þær eiga sér rætur ekki fjarri honum.

Þetta er þó mjög ólíklegt. Þó ekki væri nema vegna þess, að það vær afar óhyggilegt af Jóhönnu Sigurðardóttur að safna þeim saman utan ríkisstjórnar, Össuri, Árna Páli, Kristjáni Möller ásamt öflugu fylgdarliði sumra þeirra. Hún mundi ekki eiga sjö dagana sæla.

Hins vegar fjölgar frambjóðendum til formennsku í Samfylkingunni enda við því búizt að Jóhanna tilkynni með haustinu að hún hætti. Gerist það ekki verður til mikill „anti-klímax“ innan flokksins og þá getur allt gerzt.

En auk Árna Páls er ljóst að fleiri hugsa sér til hreyfings. Helgi Hjörvar bíður færis, Dagur B. Eggertsson leitar eftir innkomu, Sigríður Ingibjörg hefur gefið sig fram, sumir horfa til Stefáns Ólafssonar, prófessors.

En sennilega mundu stjórnarandstæðingar fagna mest ef Jóhanna héldi áfram.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Hvert er hlutverk Samfylkingar?-Er hún á sömu leið og PASOK í Grikklandi?

Í fréttum Evrópu­vaktarinnar í dag kemur fram, að fyrrverandi menntamálaráherra PASOK (flokks sósíalista) Anna Diamantopoulo hyggist segja sig úr flokknum. Hún segir að það sé engin ástæða lengur fyrir því að PASOK lifi.

Er ekki alveg öruggt að VG styður stefnu ríkis­stjórnar­innar gagnvart ESB?

Væntanlega má ganga út frá því sem vísu að þing­flokkur VG styðji núverandi ríkis­stjórn í ESB-málum. Er það ekki alveg öruggt? Nú er VG laust úr viðjum samninganna við Samfylkinguna, sem þeir Össur og Ögmundur gerðu.

Ólundarlegir fráfarandi ráðherrar

Óskaplega voru það ólundarlegir fráfarandi ráðherrar, Jóhanna Sigurðar­dóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson, sem Ríkisútvarpið talaði við á Bessastöðum í hádeginu í dag. Þeir þola bersýnilega illa, að þjóðin sagði þeim upp störfum seinni hluta aprílmánaðar. Ef þetta verður tón...

Nú þarf að moka flórinn, sem aðildarumsóknin skilur eftir

Forsvarsmenn Evrópu­sambandsins taka breyttri stefnu hér á Íslandi gagnvart aðild með ró eins og við var að búast. Enda hvað annað eiga þeir að gera? Það er að sjálfsögðu ekki tilgangur nýrrar rikis­stjórnar að efna til óvildar við nágrannaríki okkar og viðskiptavini í Evrópu. Heldur einfaldlega að stöðva ferli, sem enginn raunverulegur stuðningur var við í íslenzku sam­félagi.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS