Þriðjudagurinn 18. júní 2013

Gjörólíkt mat Björgvins og Álfheiðar á stöðu aðildarumsóknar


13. ágúst 2012 klukkan 10:24
Björgvin G. Sigurðsson

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar segir í Morgunblaðinu í dag um aðildarumsóknina að ESB að það sé raunhæft „að allar útlínur verði orðnar skýrar og komin niðurstaða í öllum þessu veigamestu köflum, landbúnaði, sjávarútvegi og peningamálum“, fyrir næstu kosningar.

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG segir í sama blaði:

„Þegar lagt var af stað með þetta ferli var að því stefnt og menn bjuggust við því og þótti nokkuð sjálfgefið að það mundi takast að ljúka viðræðunum fyrir lok kjörtímabilsins. Nú sýnist flestum að það verði ekki unnt. Það er auðvitað mikil eðlisbreyting og það þarf að skoða málið út frá því.“

Þessar tilvitnanir sýna gjörólíkt mat þesssara tveggja þingmanna ríkisstjórnarinnar á stöðu aðildarumsóknarinnar.

Hvað veldur?

Hafa þau ekki sömu upplýsingar í höndum?

Álfheiður Ingadóttir

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum

Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknar­flokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis­ráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.

Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins

Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis­ráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunar­stjóra ESB, halda áfram.

Er það óvirðing við Alþingi að standa við gefin loforð við kjósendur?

Í umræðum manna á meðal má heyra því haldið fram, að Alþingi sé óvirðing gerð með því að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis­ráðherra, hafi látið það verða sitt fyrsta verk að fara til Brussel og tilkynna framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, að hlé hafi verið gert á aðildarviðræðum Íslands. Þetta er skrýtin röksemd. Kosningar fóru fram til Alþingis í lok apríl.

Fjölmiðlar taka varla eftir ákvörðun Íslands um hlé á viðræðum

Ákvörðun ríkis­stjórnar Íslands um að gera hlé á viðræðum við Evrópu­sambandið hefur engu uppnámi valdið í nágrannalöndum okkar, hvorki í Evrópu eða Norður-Ameríku. Þessarar ákvörðunar er ekki getið í helztu fréttum dagblaða og/eða útvarps- og sjónvarpsstöðva nema á vefmiðlinum euobserver, sem segir frá blaðamannafundi Stefáns Fule og Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkis­ráðherra, í gær.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS