Þrýstingurinn á Steingrím J. Sigfússon, formann VG vex dag frá degi vegna ESB-mála á meðan ráðherrann hvílir lúin bein í útlöndum og talar ekki við fjölmiðla.

Miðað við hávaðann og stóryrðin, sem ráðherrann temur sér í umræðum á Alþingi mætti ætla að þar fari mikill „töffari“.
Getur verið að svo sé ekki?
Getur verið að formaður VG sé einn þeirra stjórnmálamanna, sem lætur undan þar sem þrýstingurinn er mestur?
Kannski grasrótin í VG ætti að prófa hvað hún kemst langt með Steingrím með þeim hætti.
Stjórn VG í Reykjavík hefur lagt sitt af mörkum til þess.
Hvað ætli Steingrímur geri ef sambærilegar samþykktir koma frá stjórnum VG-félaga um land allt?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Var Steingrímur J. samvinnuþýðari við Maríu?
Breyttur tónn Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB í garð Íslendinga vegna makrílmálsins hefur vakið athygli. Nú er hún með hnefann á lofti. Hvað ætli valdi? Sumir, eins og Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar, telja að Damanaki liggi undir þrýstingi frá þingmönnum á Evrópuþinginu, sem vel má vera og ekki ólíklegt.
Nákvæmni í orðavali skiptir máli - ekki sízt hjá ráðherrum
Þegar menn hafa tekið við ráðherradómi verða þeir að vera nákvæmari í orðavali en ella. Það á ekki sízt við um veigamikil mál á borð við ESB-málið. Sumir ráðherrar, sérstaklega Framsóknarflokksins, hafa ekki gætt þessa sem skyldi. Það á við um Sigmund Davíð og Sigurð Inga og það á við um orð, sem Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, lét falla í samtali við RÚV á laugardagskvöld.
Blaðamannafundur í Brussel stendur ekki undir útleggingum fréttastofu ríkisútvarpsins
Furðufréttir ESB-fréttastofu ríkisútvarpsins af blaðamannafundi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra og Ŝtefans Füles, stækkunarstjóra ESB, halda áfram.
Er það óvirðing við Alþingi að standa við gefin loforð við kjósendur?
Í umræðum manna á meðal má heyra því haldið fram, að Alþingi sé óvirðing gerð með því að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, hafi látið það verða sitt fyrsta verk að fara til Brussel og tilkynna framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, að hlé hafi verið gert á aðildarviðræðum Íslands. Þetta er skrýtin röksemd. Kosningar fóru fram til Alþingis í lok apríl.