Þriðjudagurinn 21. maí 2013

Og hvað svo, Ögmundur?


29. ágúst 2012 klukkan 08:51

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir í grein í Fréttablaðinu í dag:

Öassur Skarphéðinsson og Ögmundur Jónasson

„Samkvæmt skoðanakönnunum er yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga andvígur því að ganga í ESB. Það er ekkert undarlegt því að Evrópa logar. Að sjálfsögðu á þjóðin rétt á því að vera spurð hvort hún vilji fara inn í eldhafið. Það verður að gerast áður en þetta kjörtímabil er úti. Þá verða kaflaskil.“

Gott og vel. Þetta er rétt. En hvað svo Ögmundur?

Hvenær fer sú kosning fram?

Hvernig ætlar VG að tryggja að sú kosning fari fram?

Eða eru þetta bara innantóm orð eins og áður?

Mun Ögmundur halda fast við þessa skoðun daginn fyrir kjördag til þings? Hvernig ætlar hann að útskýra fyrir kjósendum VG, að forystumenn VG hafi ekki einu sinni getað staðið við þetta loforð?

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þau fengu tækifæri og klúðruðu því

Stjórnar­myndunin, sem væntanlega verður kynnt innan örfárra sólarhringa mun hleypa nýjum krafti í Framsóknar­flokk og Sjálfstæðis­flokk og auka bjartsýni í báðum flokkum um framtíðina og reyndar má finna að það á við um fólk almennt.

Hvar og hvenær missti framkvæmda­stjórn ESB jarð­sambandið?

Sendi­nefnd Evrópu­sambandsins á Íslandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu á íslensku föstudaginn 17. maí: „*Sameiginleg yfirlýsing Catherine Ashton, æðsta talsmanns stefnu ESB í utanríkis- og öryggismálum, og Maria Damanaki, framkvæmdastýru sjávar­útvegsmála hjá ESB, varðandi ákvörðun Nor...

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðum

Morgunblaðið sviptir hulunni af stjórnar­myndunarviðræðunum í dag með grein Péturs Blöndals, blaðamanns í sunnudagsblaði. Þar er að finna beztu upplýsingar, sem fram hafa komið í fjölmiðlum til þessa um viðræður Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks og ástæða til að hvetja áhugamenn um stjórnmál og stjórnar­myndunina til þess að kynna sér efni greinarinnar.

Stjórnar­myndun langt komin - og ekkert fréttist!

Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson eru komnir langt með stjórnar­myndun sína án þess, að nokkuð sem máli skipti hafi frétzt af þeim viðræðum. Þetta er ekki lítið afrek í sam­félagi nútímans. Oftast- en ekki alltaf- hafa viðræður af þessu tagi verið hriplekar. Ekki að þessu sinni.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS