Mánudagurinn 16. desember 2019

Misheppnaðar tilraunir Steingríms J. til skýringa ættu að verða stjórnar­flokkunum umhugsunarefni


6. nóvember 2013 klukkan 09:12
Gunnar Bragi Sveinsson

Misheppnaðar tilraunir Steingríms J. Sigfússonar, fyrrum formanns VG til að útskýra í nýrri bók svik sín og flokks síns í ESB-málum ættiu að verða núverandi stjórnarflokkum umhugsunarefni.

Þeir fengu skýrt umboð kjósenda í kosningum til þess að afgreiða ESB-málið en hafa farið sér ótrúlega hægt í að gera þjóðinni grein fyrir því, hvernig þeir ætla að standa að þeim málum.

Fyrir utan að gera hlé á viðræðum hafa þeir ekkert gert nema að fela Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að semja skýrslu og sú ákvörðun var ekki endanlega tekin fyrr en Óli Björn Kárason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hafði ýtt við utanríkisráðherra með skriflegri fyrirspurn.

Ósigur VG í síðustu þingkosningum átti sér margar ástæður en ekki sízt svik flokksins í ESB-málum.

Núverandi ráðamenn ættu að hugleiða að tíminn líður fljótt og að það er styttra í næstu þingkosningar en þeim kannski finnst sjálfum.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS