Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í dag er kafli, sem ástæða er til að vekja athygli á. Þar segir:
„Stundum er á það bent að ráðuneytin hafi fjölda manna á sínum snærum í Brussel til að gæta hagsmuna Íslands við tilskipunarvinnuna þar á frumstigi. Það verður að segja það eins og er að af slíkum er minna en ekkert gagn. Það var rétt hjá frú Thatcher að slíkir sendifulltrúar líta furðu fljótt á sig sem “innfædda„ í Brussel og taka að halda að hlutverk þeirra sé að gæta hagsmuna búrókratanna gagnvart eigin þjóð. Helzta verkefni þeirra og oft það eina, ef eftirmiðdagsboð eru talin frá er því gjarnan það að hotta á sína eigin heimamenn, stjórnkerfið og þingið,að innleiða sérhverja tilskipun eins og skot en auðvitað ekki fyrr en eftir sjálfstæða athugun, sem sérhver blindur kettlingur gæti verið stoltur af. Óskilanlegt er að núverandi ríkisstjórn skuli ekki hafa skoðað úrslit síðustu kosninga og vilja kjósenda þegar hún leit svo á að í Evrópumálum bæri að stýra eins og bílstjóri sem teldi heppilegast að langferðabíllinn til Ísafjarðar færi Krýsuvíkurleiðina og svo austur eftir og hringinn, af því að einn áttavilltur farþegi af 50 væri í rútunni, þætti felast í því mest sanngirni og fáránleikanum þeim hefði ekki verið andmælt á kosningafundi í Sandgerði. Sú óvænta uppákoma hefði breytt niðurstöðu landsfunda flokkanna.
En ekki batnaði það, þegar talsmenn ríkisstjórnarinnar bættu því við að í öllum þeim niðurskurði sem yrði að framkvæma í landinu væru þeir ákveðnir í að fjölga(!) í hópi íslenzkra innfæddra í Brussel til að styrkja kórinn sem hrópaði yfir hafið til að hotta á innleiðingu tilskipana. Sjálfsagt er það líka eitthvert yfirskilvitlegt tillit til þessa framantalda farþega sem fékk að ráða ferðinni austur um land og áleiðis til Ísafjarðar. Hver skyldi hann vera, þessi maður?“
Þessi orð eru umhugsunarefni fyrir utanríkisráðuneytið - og stjórnarflokkanna.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...