Hvar sem komið er verður þess vart að stuðningsmenn og velunnarar núverandi ríkisstjórnar eiga erfitt með að skilja á hvaða vegferð hún er. Það eru ekki aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem valda þessu heldur miklu fremur það sem þessi hópur fólks upplifir sem aðgerðarleysi.
En þótt ástandið sé bágborið meðal stuðningsmanna stjórnarflokkanna, sem hafa orðið fyrir vonbrigðum - miklum vonbrigðum - er það sízt betra í stjórnarandstöðuflokkunum. Þótt þeir hafi eitthvað verið að bæta stöðu sína í skoðanakönnunum fer hitt ekki á milli mála, að þeir hafa ekkert að segja sem máli skiptir. Það eru engar vísbendingar um að einhvers konar endurnýjun stefnumótunar fari fram í þeim herbúðum.
Það er ekki ofmælt að stuðningsmenn bæði stjórnar og stjórnarflokkar hafi verið skildir eftir í reiðileysi.
Þetta er þeim mun athyglisverðara, þar sem kynslóðaskipti hafa farið fram í öllum flokkum og ný og ung kynslóð tekið við stjórn landsins.
Getur verið að hún hafi ekkert að segja?
Þetta hugmyndaleysi endurspeglast svo í því að það eru litlar umræður um alvörumál á opinberum vettvangi.
Umræðurnar snúast um upphlaup og uppnám, Þessi sagði þetta og hinn sagði hitt.
Hvað ætli valdi því að bezt menntaða kynslóð Íslendinga virðist ekkert hafa fram að færa um framtíð lands og þjóðar?
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...