Mánudagurinn 18. janúar 2021

Er Björt Framtíð „frjálslyndur hægri flokkur“?


12. júní 2014 klukkan 08:31
Árni Páll Árnason

Það mátti skilja Árna Pál Árnason, formann Samfylkingar á þann veg á Sprengisandi Sigurjóns M. Egilssonar fyrir skömmu að hann teldi Bjarta framtíð „frjálslyndan hægri flokk“ og að grundvallarmunur væri á þeim flokki og Samfylkingu, sem væri „sósíaldemókratískur“ flokkur, aðili að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna.

Þetta er forvitnileg skilgreining.

Jafnaðarmannaflokkar 20. aldarinnar lögðu áherzlu á pólitíska baráttu í þágu „verkalýðsins“. Það samheiti yfir almenna launþega er kannski orðið álitaefni. Verkafólk fyrri tíma er í raun orðið að stjórnendum véla og tækja, sem vinna þá vinnu sem áður var unnin með höndunum, hvort sem er til sjós eða lands.

Eru jafnaðarmenn 21. aldarinnar helztu málsvarar þeirra sem minnst mega sín? Sjálfsagt eru þeir það að einhverju leyti en þó er það svo að í Evrópu eru jafnaðarmenn að missa tengslin við almennt launafólk, sem hefur flykkst til fylgis við þá flokka, sem jafnaðarmenn sjálfir kalla hægri öfgaflokka.

Hvernig má það vera?

En jafnframt eru jafnaðarmenn sjálfir að verða helztu málsvarar hinnar „nýju stéttar“, þ.e. pólitískrar yfirstéttar stjórnmálamanna og embættismanna, sem hafa fyrir löngu misst tengslin við hinn almenna borgara.

Sé skilgreining Árna Páls á Bjartri Framtíð sem „frjálslyndum hægri flokki“ rétt verður fróðlegt að fylgjast með viðureign þess flokks og hins nýja hægri flokks, sem rætt var um að stofna á fundi í gær.

Og jafnframt verður spennandi að fylgjast með þeim átakalínum sem væntanlega verða til innan meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur á milli „jafnaðarmanna“ Samfylkingar og hinna „frjálslyndu hægri manna“ Bjartrar Framtíðar!

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS