Miðvikudagurinn 20. janúar 2021

Rússland er stórveldi á Norðurskauts­svæðinu-Bandaríkin ekki


4. júlí 2014 klukkan 07:46
BBC
Siglingaleiðir í Norður-Íshafi fyrir norðan Kanada að vestan og Rússland að austan.

Rússi að nafni Alexander Pilyasov, sem er stjórnandi rannsóknarstofnunar í Rússlandi, sem fjallar um Norðurslóðir, vakti athygli á því í grein, sem birtist á vef Barentsobserver í maí að yfirráðasvæði Rússa nái yfir helming þess svæðis sem er fyrir norðan heimskautsbaug.

Þetta skýrir annars vegar þá miklu áherzlu, sem Rússar leggja nú á hernaðarlega uppbyggingu á þeim slóðum og sagt var frá hér á Evrópuvaktinni í gær og undirstrikar um leið þann gífurlega kostnað, sem Rússar hafa af víðfemi lands síns.

Í sömu grein vekur Pilyasov athygli á því hve takmarkað aðgengi Bandaríkjanna er að þessu svæði en það aðgengi takmarkast við Beringsund og nærliggjandi hafsvæði.

Rússland er því stórveldi á Norðurskautssvæðinu, sem Bandaríkin eru ekki.

Þess vegna m.a. þurfa Bandaríkjamenn á Íslandi, Grænlandi og Kanada að halda.

Þetta er gott að hafa í huga.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS