Miðvikudagurinn 20. janúar 2021

Jón Bjarnason kjörinn formaður Heimssýnar

Erindi Ágústar Þórs vekur spurningar, sem fyrrverandi utanríkis­ráðherra og ríkis­stjórn verða að svara


10. október 2014 klukkan 07:59
Jón Bjarnason

Aðalfundur Heimssýnar í gærkvöldi var vel sóttur og sýndi að kraftur er í samtökunum, Það endurspeglaðist líka í skýrslu Vigdísar Hauksdóttur, fráfarandi formanns, um starfsemi Heimssýnar á liðnu starfsári. Jón Bjarnason,fyrrum alþm. og ráðherra, var kjörinn formaður samtakanna og Jóhanna María Sigmundsdóttir, alþm. varaformaður.

Erindi Ágústar Þórs Árnasonar um framvindu viðræðna Íslands við ESB síðustu ár og þróun Evrópusambandsins undanfarna áratugi, vakti verðskuldaða athygli og um það spunnust líflegar og málefnalegar umræður.

Erindi Ágústar Þórs sýndi að fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi ríkisstjórn eiga mörgu ósvarað um atbeina þeirra að þeim viðræðum.

Nú verður að ætla að styttist í að þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um afturköllun aðildarumsóknar verði lögð fram á ný. Umræður um hana eru kjörinn vettvangur til að draga fram svör við þeim spurningum.

Flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið snemma á næsta ári og landsfundur Sjálfstæðisflokks verður haldinn á næsta ári.

Tæpast ætla forystumenn flokkanna að koma til þeirra funda án þess að málinu hafi verið lokið - eða hvað?

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS