Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, sagði í gríska þinginu í dag að Grikkir mundu ekki láta beita sig „sálfræðilegri fjárkúgun“.
Ríkisstjórn hans mun leggja fyrir gríska þingið tillögur um breytingar á þeim aðgerðum, sem Grikkir hafa skuldbundið sig til gagnvart erlendum lánardrottnum og stefna að því að þær tillögur verði afgreiddar fyrir lok þessarar viku.
Frá þessu segir gríski vefmiðillinn ekathimerini, sem bendir jafnframt á að Grikkir séu einangraðir í afstöðu sinni og þeim mæti veggur annarra aðildarríkja evrunnar, sem standi saman.
Þrátt fyrir það sagði Varoufakis, fjármálaráðherra í dag að innan ESB væru menn sérfræðingar í að finna lausn á ágreiningsmálum, þrátt fyrir mikinn skoðanamun.
Athygli hefur vakið að hin nýja vinstri sinnaða ríkisstjórn Grikklands hefur tilnefnt þekktan íhaldsmann, sem næsta forseta Grikklands.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...