Litháar óttast rússneska innrás. Stjórnvöld þar hafa lagt fyrir þingið tilögu um herskyldu. Verði hún samþykkt verða 3000 ungir menn á aldrinum 19-26 ára kallaðir til herþjónustu. Til staðar er 15 þúsund manna herlið. Litháen gerðist aðili að Atlantshafsbandalaginu 2004.
Sérfræðingur, sem dálkahöfundur Reuters talar við telur hugsanlegt að Rússar mundu gera beina innrás í Litháen frá Kaliningrad, litlu landsvæði við Eystrasalt, sem Rússar ráða yfir og þar sem þeir hafa komið upp öflugu herliði. Þannig gætu þeir opnað leið á milli Rússlands og Kaliningrad.
Í Litháen er ekki jafn mikill fjöldi fólks af rússneskum ættum eins og í Lettlandi og Eistlandi. Þar er hins vegar öflugur pólskur minnihluti. Leiðtogi Pólverja í Litháen er hallur undir Rússa og stendur með þeim í átökunum í austurhluta Evrópu.
Byggt á grein eftir Olu Cichowlas, dálkahöfund á Reuter sem sérhæfir sig í málefnum Rússlands og Austur-Evrópu.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...