Miðvikudagurinn 14. apríl 2021

Pútín: Aðgerðir Vesturlanda beinast að kosningaárunum 2016 og 2018 í Rússlandi


28. mars 2015 klukkan 09:12
Vladimir Pútín

Í ræðu Pútíns, Rússlandsforseta á fundi hjá rússnesku leyniþjónustunni sl.fimmtudag, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni, kom fram að þær aðgerðir Vesturlanda, sem hann lýsti þar beindust sérstaklega að árunum 2016 og 2018 en á næsta ári fara fram þingkosningar í Rússlandi og 2018 fara fram forsetakosningar.

Frá þessu segir Barents Observer.

Pútín sagði í ræðunni að stjórnvöld vildu halda uppi skoðanaskiptum við stjórnarandstöðuna og samskiptum við samfélagið í heild. En hann sagði tilgangslaust að eiga slík skoðanaskipti við þá, sem tækju við fyrirskipunum erlendis frá.

Hann undirstrikaði að stjórnvöld mundu áfram fylgjast með félagasamtökum, sem störfuðu að lauslega skilgreindum pólitískum markmiðum og nytu fjárstuðnings frá öðrum löndum.

Meðal þeirrar starfsemi, sem fellur undir þessa skilgreiningu Rússlandsforseta eru skrifstofur sem Norðurlandaráð hefur starfrækt í norðvesturhluta Rússlands, en þeim hefur nú verið lokað í kjölfar kröfu um að þær yrðu skráðar sem „útlendir agentar“.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í pottinum

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming

Brezka flug­félagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.

Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra

Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.

PIMCO: Evru­svæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu

Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfa­sjóðs heims, segja að evru­svæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evru­svæðinu h...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS