Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Forystumenn allra flokka þurfa að ræða lok umsóknarferils


Styrmir Gunnarsson
22. júní 2012 klukkan 09:59

Stundum þurfa forystumenn í stjórnmálum að tala saman um málefni lands og þjóðar, hvað sem átökum um dægurmál líður. Nú er slík stund runnin upp.

Þjóðin situr uppi með aðildarumsókn að Evrópusambandinu, sem samþykkt var á Alþingi í júlí 2009 við óvenjulegar aðstæður.

Á þeim bráðum þremur árum, sem liðin eru hefur stöðugt hallað undan fæti fyrir Evrópusambandinu sjálfu að ekki sé talað um myntbandalagið. Innan Evrópusambandsins er engin samstaða um framhaldið. Sum ríki á meginlandinu vilja stefna í átt til frekari sameiningar. Það er alveg hugsanlegt að sú stefna leiði til þess að Bretland yfirgefi ESB. Þar í landi eru nú kröfur innan beggja helztu flokkanna, Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins um að fram fari á allra næstu árum þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort Bretland eigi áfram að vera í Evrópusambandinu.

Ljóst er að aðild er ekki einu sinni á dagskrá eða til umræðu í Noregi og verður ekki um fyrirsjáanlega framtíð.

Aðildarumsókn Íslands er strönduð. Ekki bara vegna þess hvað andstaðan er mikil hér heima fyrir heldur líka vegna andstöðu við hana innan Evrópusambandsins. Jafnvel mestu ákafamönnum um aðild að Evrópusambandinu hér er ljóst að þeir hafa tapað þessari lotu. Innan ESB er vaxandi andstaða ríkja, sem hagsmuni eiga vegna fiskveiða á Norður-Atlantshafi við aðild Íslands nema með skilyrðum, sem óhugsandi er að Íslendingar geti fallizt á.

Hvort sem aðildarsinnum líkar betur eða ver er aðildarumsóknin búin að vera.

Hitt skiptir miklu máli fyrir hagsmuni okkar Íslendinga að horfið verði frá þessari vegferð í friði og vinsemd. Það er engin ástæða til að við skiljum við ESB-þjóðirnar í einhverjum leiðindum þótt við höfum komizt að þeirri niðurstöðu að aðild henti ekki okkar hagsmunum og sumir innan dyra hjá þeim hafi komist að sömu niðurstöðu.

Þess vegna er nú tímabært að forystumenn allra flokka setjist niður og ræði þetta mál sín í milli og láti á það reyna, hvort þeir geti komizt að samkomulagi um hvernig þessari vegferð verði lokið.

Vinstri grænir eru að leita leiða til þess vegna eigin pólitískra hagsmuna og Samfylkingin þarf að átta sig á að aðildarumsóknin verður henni fjötur um fót í næstu þingkosningum.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri leiðarar

Gagnsæi í utanríkis­málum

Hér á Evrópu­vaktinni hefur verið hvatt til þess að gefin verði út hvítbók um viðræður Íslands við Evrópu­sambandið síðustu fjögur ár. Gera má ráð fyrir að það starf við mat á stöðu aðildarumsóknar og þróun Evrópu­sambandsins sjálfs, sem er að hefjast geti leitt til útgáfu slíkrar hvítbókar. Að vísu eru þeir til sem halda því fram, að allt hafi nú þegar verið birt sem máli skiptir.

Þjóðhátíðarræðan og ESB

Miðað við stefnu ríkis­stjórnar­innar um að gera hlé á viðræðunum við ESB um ótak­markaðan tíma, leggja niður viðræðu­nefnd Íslands, gera úttekt á stöðu aðildarmálsins og framtíðarþróun ESB auk þess sem ekki verði haldið áfram með viðræðurnar nema íslenska þjóðin gefi grænt ljós í þjóðar­atkvæða­greiðslu ...

Bjartara yfir 17. júní

Það er bjartara yfir þessum 17. júní en verið hefur síðustu ár. Ástæðan er sú, að þjóðin sjálf hefur beint Alþingi af þeirri braut, sem mörkuð var sumarið 2009 að fórna sjálfstæði Íslands til þess að geta hlaupið í skjól undir pilsfald Evrópu­sambandsins. Nú er búið að rétta þann kúrs af og þess vegn...

Samskipti við ESB á nýjum grunni - aðildarsinnar hverfi frá ein­stefnu

Fundur Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis­ráðherra með Štefan Füle, stækkunar­stjóra ESB, í Brussel fimmtudaginn 13. júní hefur lagt nýjan grunn að samskiptum Íslands og ESB. Füle sagði tvisvar sinnum á blaðamannafundi með Gunnari Braga að hann liti samband Íslands og ESB sérstökum augum. Ísland ætti...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS