Miðvikudagurinn 19. júní 2013

ESB stefnir á löndunarbann-eru mótaðgerðir í undirbúningi?


Styrmir Gunnarsson
6. júlí 2012 klukkan 10:32

Það er skiljanlegt að Austurglugginn, fréttablað Austurlands hafi áhyggjur af yfirvofandi refsiaðgerðum Evrópusambandsins gagnvart Íslendingum vegna makríldeilunnar. Í einu orði sagt er ESB að undirbúa löndunarbann á íslenzkan fisk í evrópskum höfnum.

Slíkar áhyggjur mega hins vegar ekki verða til þess að við látum Evrópusambandið kúga okkur. Það hefur áður verið reynt og ekki tekizt.

Hið upphaflega löndunarbann í Bretlandi eftir útfærslu fiskveiðilögsögunnar í fjórar sjómílur hafði þau áhrif að nýir markaðir opnuðust fyrir íslenzkan fisk í Sovétrikjunum. Það var að vísu ekki gott að verða háðir Sovétmönnum um sölu á fiski og kaup á olíu en þó skárri kostur en að láta Breta kúga okkur.

Nú á eftir að koma í ljós, hvort samstaða verður um það innan ESB að setja löndunarbann á Íslendinga og Færeyinga vegna makríldeilunnar. Ætla Danir að taka þátt í því? Ætla Svíar að taka þátt í því? Ætla Finnar að taka þátt í því? Ætla Þjóðverjar að taka þátt í því?

En færi svo, að þessar þjóðir allar láti hafa sig í það að setja löndunarbann á íslenzkan (og væntanlega færeyskan) fisk er ekki um annað að ræða en kanna aðra möguleika á sölu fiskafurða okkar. Hafa stjórnvöld hafið undirbúning að því? Eða ætla þau að sitja auðum höndum?

Eins og alþjóð veit hafa aðrar þjóðir sýnt okkur áhuga. Rússar höfðu við orð að lána okkur peninga í hruninu, þótt af því hafi ekki orðið. Rússland hefur lengi verið góður markaður fyrir íslenzkan fisk.

Kínverjar sýna okkur sérstakan áhuga en það er auðvitað spurning, hvort þeir mundu setja sölu Grímsstaða á Fjöllum sem skilyrði fyrir frekari kaupum á afurðum okkar! Það fylgir sögum um umsvif þeirra í öðrum löndum, að stundum fylgi skilmálar.

Bandaríkjamenn hafa að vísu ekki lengur sama hvata og áður til þess að segja Evópuþjóðunum að láta okkur í friði en færi svo að við ættum ekki annan kost en að leita til Rússa og Kínverja má búast við að menn vakni upp við vondan draum í Washington og segi við ESB: Hingað og ekki lengra.

Við eigum því ýmsa leiki á borðinu.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri leiðarar

Þjóðhátíðarræðan og ESB

Miðað við stefnu ríkis­stjórnar­innar um að gera hlé á viðræðunum við ESB um ótak­markaðan tíma, leggja niður viðræðu­nefnd Íslands, gera úttekt á stöðu aðildarmálsins og framtíðarþróun ESB auk þess sem ekki verði haldið áfram með viðræðurnar nema íslenska þjóðin gefi grænt ljós í þjóðar­atkvæða­greiðslu ...

Bjartara yfir 17. júní

Það er bjartara yfir þessum 17. júní en verið hefur síðustu ár. Ástæðan er sú, að þjóðin sjálf hefur beint Alþingi af þeirri braut, sem mörkuð var sumarið 2009 að fórna sjálfstæði Íslands til þess að geta hlaupið í skjól undir pilsfald Evrópu­sambandsins. Nú er búið að rétta þann kúrs af og þess vegn...

Samskipti við ESB á nýjum grunni - aðildarsinnar hverfi frá ein­stefnu

Fundur Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis­ráðherra með Štefan Füle, stækkunar­stjóra ESB, í Brussel fimmtudaginn 13. júní hefur lagt nýjan grunn að samskiptum Íslands og ESB. Füle sagði tvisvar sinnum á blaðamannafundi með Gunnari Braga að hann liti samband Íslands og ESB sérstökum augum. Ísland ætti...

Tímamót

Dagurinn í gær, 13. júní 2013 var merkur dagur í sögu íslenzku þjóðar­innar. Þann dag var formlega tilkynnt í Brussel, að Ísland hefði gert hlé á aðildarviðræðum við Evrópu­sambandið. Yfirlýsing Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkis­ráðherra, í samtali við Stefán Fule, stækkunar­stjóra ESB var skýr. Þeir...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS