Miðvikudagurinn 19. júní 2013

Jóhanna og Össur ættu að setjast við fótskör Tuomioja


Styrmir Gunnarsson
17. ágúst 2012 klukkan 09:13

Kannski ættu Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson að fara í heimsókn til Finnlands og ræða við flokksbróður sinn, jafnaðarmanninn Erkki Tuomioja, sem nú er utanríkisráðherra Finnlands. Slík heimsókn mundi kannski hjálpa þeim að ná áttum. Finnski utanríkisráðherrann er í fréttum um alla Evrópu á þessum föstudagsmorgni vegna viðtals, sem Daily Telegraph hefur átt við hann um vandamál evrunnar.

Í viðtali þessu segir Tuomioja, að Finnar verði að vera undir það búnir að evrusamstarfið splundrist. Hann segir að slík þróun mundi ekki hafa önnur áhrif á Evrópusambandið sem slíkt en þau að það yrði starfhæfara eftir en áður. Hann segir líka að hann gruni „fjórmenningaklíkuna“ um græzku. Að vísu er klíkan ekki nákvæmlega skilgreind í viðtalinu en þó kemur fram að Seðlabanki Evrópu sé einn af þessum fjóru aðilum. Væntanlega eru hinir þrír, Þýzkaland, Frakkland og framkvæmdastjórn ESB.

Finnski utanríkisráðherrann segist ekki treysta þessu fólki! Það ætli að ginna önnur aðildarríki ESB inn í ríkisfjármálabandalag.

Það mundi áreiðanlega gagnast forystumönnum Samfylkingarinnar að setjast við fótskör þessa manns heldur en að sitja sí og æ á tali við gamla maoista og trotskýista eins og Stefán Fule og Jose Manuel Barroso.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri leiðarar

Þjóðhátíðarræðan og ESB

Miðað við stefnu ríkis­stjórnar­innar um að gera hlé á viðræðunum við ESB um ótak­markaðan tíma, leggja niður viðræðu­nefnd Íslands, gera úttekt á stöðu aðildarmálsins og framtíðarþróun ESB auk þess sem ekki verði haldið áfram með viðræðurnar nema íslenska þjóðin gefi grænt ljós í þjóðar­atkvæða­greiðslu ...

Bjartara yfir 17. júní

Það er bjartara yfir þessum 17. júní en verið hefur síðustu ár. Ástæðan er sú, að þjóðin sjálf hefur beint Alþingi af þeirri braut, sem mörkuð var sumarið 2009 að fórna sjálfstæði Íslands til þess að geta hlaupið í skjól undir pilsfald Evrópu­sambandsins. Nú er búið að rétta þann kúrs af og þess vegn...

Samskipti við ESB á nýjum grunni - aðildarsinnar hverfi frá ein­stefnu

Fundur Gunnars Braga Sveinssonar utanríkis­ráðherra með Štefan Füle, stækkunar­stjóra ESB, í Brussel fimmtudaginn 13. júní hefur lagt nýjan grunn að samskiptum Íslands og ESB. Füle sagði tvisvar sinnum á blaðamannafundi með Gunnari Braga að hann liti samband Íslands og ESB sérstökum augum. Ísland ætti...

Tímamót

Dagurinn í gær, 13. júní 2013 var merkur dagur í sögu íslenzku þjóðar­innar. Þann dag var formlega tilkynnt í Brussel, að Ísland hefði gert hlé á aðildarviðræðum við Evrópu­sambandið. Yfirlýsing Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkis­ráðherra, í samtali við Stefán Fule, stækkunar­stjóra ESB var skýr. Þeir...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS