Laugardagurinn 14. desember 2019

Þrjár hrakspár ESB-aðildarsinna falla dauðar


Björn Bjarnason
26. apríl 2014 klukkan 10:05

Á sínum tíma ráku ESB-aðildarsinnar mikinn hræðsluáróður vegna Icesave-samninganna. Ef Íslendingar færu ekki að einhliða kröfum Hollendinga og Breta yrðu þeir útilokaðir frá samskiptum við aðrar þjóðir, litið yrði á þá sem utangarðsmenn sem neituðu að borga skuldir sínar. Ekkert af þessu gekk eftir þegar á reyndi. Að loknum tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum þar sem samningum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur var hafnað fór málið fyrir EFTA-dómstólinn þar sem málstaður þeirra sem voru andvígir undanlátsstefnu ríkisstjórnarinnar og ESB-aðildarsinna sigraði.

Annað mál svipaðs eðlis er makríldeilan. Í því hafa ESB-aðildarsinnar tiplað á tánum í kringum ESB og meira að segja sagt á fyrstu stigum málsins að líklega væri málstað Íslendinga betur borgið innan ESB en utan. Menn gætu séð það á stöðu Skota!

Þegar Færeyingar, Norðmenn og fulltrúar ESB gerðu makrílsamning til fimm ára á bakvið Íslendinga hinn 12. mars sl. tóku ESB-aðildarsinnar andköf. Nú hefði ríkisstjórnin ekki aðeins brotið allar brýr að baki sér gagnvart ESB heldur einnig gagnvart Færeyingum og Norðmönnum. Hinn 13. mars talaði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, á alþingi um hin „hrikalegu afglöp sem við verðum hér vitni að, að ríkisstjórnin missi algerlega sjónar á því að ná samningum um þetta brýna hagsmunamál og endi á að vera skilin eftir og afturreka“.

Enn einu sinni hófst hræðslusöngurinn um að varðstaða um hagsmuni Íslendinga mundi gera þá að einangruðu viðundri meðal þjóða heims.

Sjávarútvegsráðherra tilkynnti einhliða þriðjudaginn 22. apríl að íslensk skip hefðu heimild til að veiða 147.574 lestir af makríl á vertíðinni 2014. Framkvæmdastjórn ESB fagnaði þessari ákvörðun í tilkynningu sem birt var fimmtudaginn 24. apríl og sagði hana jákvætt skref. „Við hvetjum Íslendinga þess vegna til þess að setjast með hinum aðilunum þremur að samningaborðinu við fyrsta tækifæri til að unnt sé að leggja lokahönd á fjögurra strandríkja samning um makríl,“ sagði í tilkynningu frá Mariu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB.

Þar með fauk hræðsluröksemd ESB-aðildarsinna um að varðstaða um markíl-hagsmunina yrði til að brjóta allar brýr að baki Íslendingum í samskiptum við aðra.

ESB-aðildarsinnar hafa ekki sýnt sérstakan áhuga á að losa Íslendinga úr gjaldeyrishöftum nema það gerist samhliða aðild að ESB. Þeir hafa látið eins og höftin séu annars vegar tilefni þess að Íslendingar séu litnir hornauga af ESB vegna brota á EES-samningnum og hins vegar að það þurfi sérstaka velvild af hálfu ESB til að viðhalda höftunum. Verði ekki gengið í ESB til að losna við höftin einangrist þjóðin ekki aðeins viðskiptalega heldur einnig pólitískt. ESB geti ekki þolað þessa stöðu.

Í vikunni birtist frétt um skriflegt svar sem Catherine Ashton, utanríkis- og öryggismálastjóri ESB, gaf hinn 14. apríl 2014 dönskum ESB-þingmanni, Morten Løkkegaard, frá danska Venstre-flokknum, sem vildi vita hvort höftin stæðust EES-samninginn að mati Ashton. Svarið var afdráttarlaust: Já, höftin eru tímabundin, þau standast EES-samninginn enda hefur EFTA-dómstóllinn staðfest að svo sé. Ekki sé nein ástæða að hrófla við EES-samningnum vegna þeirra.

Í þriðja meginmálinu féllu hrakspár ESB-aðildarsinna dauðar. Forvitnilegt verður að fylgjast með því hvaða hagsmunamál Íslendinga þeir taka til við að afflytja næst í viðleitni sinni til að hræða þjóðina til stuðnings við málstað sinn.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri leiðarar

Rússar láta Finna finna fyrir sér

Það hefur ekki farið fram hjá lesendum Evrópu­vaktarinnar að umræður í Finnlandi um öryggismál Finna hafa aukizt mjög í kjölfarið á deilunum um Úkraínu. Spurningar hafa vaknað um hvort Finnar eigi að gerast aðilar að Atlantshafsbandalaginu eða láta duga að auka samstarf við Svía um öryggismál.

ESB-þingkosningar og lýðræðisþróunin

Kosningar til ESB-þingsins eru í Bretlandi og Hollandi fimmtudaginn 22. maí og síðan í hverju ESB-landinu á eftir öðru þar til sunnudaginn 25. maí. Stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi hafa lagt áherslu á nauðsyn þess að dregið verði úr mið­stjórnar­valdi ESB-stofnana í Brussel í von um að andstaða þeir...

Þjóðverjar vilja ekki aukin afskipti af alþjóða­málum

Þýzkaland er orðið öflugasta ríkið í Evrópu á ný. Þýzkaland stjórnar Evrópu­sambandinu. Þar gerist ekkert, sem Þjóðverjar eru ekki sáttir við. Í þessu samhengi er niðurstaða nýrrar könnunar á viðhorfi almennings í Þýzkalandi til afskipta Þjóðverja af alþjóða­málum athyglisverð en frá henni er sagt í fréttum Evrópu­vaktarinnar í dag.

Þáttaskil í samskiptum NATO við Rússa - faðmlag Rússa og Kínverja - ógn í Norður-Íshafi?

Anders Fogh Rasmussen, framkvæmda­stjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) var ómyrkur í máli um Rússa á reglulegum blaðamannafundi sínum í Brussel mánudaginn 19. maí. Hann sagði að viðleitni þeirra til að sundra Úkraínu hefði skapað „algjörlega nýja stöðu í öryggismálum Evrópu“. Það sem gerðist um þess...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS