Sunnudagurinn 26. maí 2013

Fimmtudagurinn 2. desember 2010

«
1. desember

2. desember 2010
»
3. desember
Fréttir

Fjárfestar keyptu spænsk skulda­bréf - einkavæðing aukin á Spáni

Fjárfestar höfðu áhuga á spænskum skulda­bréfum fimmtudaginn 2. desember en vildu fá töluvert hærri vexti en áður. Fyrir útboð skulda­bréfanna boðaði ríkis­stjórnin aukna einkavæðingu til að létta á pressunni sem hvíldi á fjármálakerfi landsins. Ríkis­sjóður Spánar aflaði sér 2,468 milljarða evra að lá...

Fjölþjóðlegir fyrirtækjarisar fá byggðastyrki frá ESB

Fjölþjóðlegir risar á borð við Coca-Cola, IBM og McDonalds fá styrki frá Evrópu­sambandinu, sem vill með því hindra að þau yfirgefi ESB-svæðið, segir The Financial Times (FT) fimmtudaginn 2. desember. Byggða- og atvinnuvega­sjóðum ESB er ætlað að draga úr efnahagslegu misvægi innan ESB með því að sty...

Aukin bjartsýni um aðgerðir Seðlabanka Evrópu

Hluta­bréf hafa hækkað í verði í gær og í dag víða um heim vegna aukinnar bjartsýni um, að Seðlabanki Evrópu grípi til ráðstafana, sem auki traust á evrunni og evru­svæðinu í heild. Fyrst og fremst er rætt um að bankinn stórauki skulda­bréfakaup á mörkuðum.

NYTimes: Ítalía og Belgía næst á dagskrá

New York Times segir í dag, að nú sé athygli manna á evru­svæðinu farin að beinast að Ítalíu og Belgíu og vangaveltur byrjaðar um, hvort þau tvö ríki komi í kjölfar Portúgals og Spánar sem vandamálaríki. Blaðið segir, að þótt vandamál Ítala séu annars eðlis fari saman mikil skuldsetning og pólitískt óvissuástands.

Tillögur ESB: Umferðarlagabrot elta ökumanninn

Nú stefnir í að umferðarlagabrot, sem framið er í einu ESB-ríki elti þann, sem brotið framdi til hans heimalands, hvort sem um er að ræða of hraðan akstur eða að aka án bílbeltis. Samgöngu­ráðherrar ESB-ríkja ræða tillögu um þetta á fundi í dag að sögn euobserver.

Leiðarar

Óheilindi spilla utanríkis­þjónustu

Í leiðara Morgunblaðsins er í dag rætt um vaxandi skort á trúverðugleika utanríkis­þjónustu Íslands.

Pistlar

Svört skýrsla Buiters um evruna - spáði bankahruni hér

Áhugi fjárfesta á spænskum ríkisskulda­bréfum var nægur fimmtudaginn 2. desember til að ríkið næði því markmiði sínu að ná í rúma tvo milljarði evra að láni. Vaxta­kjörin voru ekki heldur óheyrilega há, svo að mönnum létti í Madrid og í raun öllum höfuðborgum evru-svæðisins. Misheppnað útboð eða ávöxt...

Í pottinum

Dómur sögunnar um Geir og Davíð-dómur ESB um Jóhönnu og Steingrím J.

Á Bloomberg í morgun var orð á því haft að Íslendingar hefðu haustið 2008 sett bankana í þrot og þar með lagt grundvöll að endurreisn en Írar hefðu ekki þorað að fara þá leið og sætu nú uppi með það tveimur árum síðar.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS