Fimmtudagurinn 23. maí 2013

Miðvikudagurinn 26. janúar 2011

«
25. janúar

26. janúar 2011
»
27. janúar
Fréttir

Skotar hvetja til harðari refsinga gegn Íslendingum vegna makríldeilunnar

Ian Gatt, framkvæmda­stjóri Samtaka uppsjávar­veiða í Skotlandi, hvatti til þess á fundi með fiskveði­nefnd ESB-þingsins í Brussel þriðjudaginn 25. janúar, að Íslendingar yrðu beittir frekari refsiaðgerðum, einnig í ESB-aðildarviðræðum þeirra, til að knýja þá til viðunandi samkomulags í makríldeilunni....

Nýr leiðtogi hjá Fianna Fail

Fianna Fail, ríkis­stjórnar­flokkurinn á Írlandi, hefur kosið nýjan leiðtoga, Michael Martin, fyrrverandi utanríkis­ráðherra.

Þýskaland: Frjálsir demókratar senda Rehn tómhentan til Brussel

Þing­flokkur frjálslyndra (FDP) sem myndar meirihluta á þýska þinginu með kristilegum demókrötum og stendur því að baki Angelu Merkel, kanslara, og ríkis­stjórn hennar hafnaði þriðjudaginn 25. janúar tilmælum Olli Rehn, efnahagsmála­stjóra ESB, um að gripið yrði til frekari björgunaraðgerða í þágu evru...

Traust Þjóðverja í garð ESB og evru hríðfellur

Ný könnun í Þýskalandi á vegum Allensbach-stofnunarinnar sýnir að Þjóðverjar bera nú minna traust til ESB en nokkru sinni fyrr.

Komast mátti hjá fjármálakreppunni segir bandarísk þing­nefnd

Fjármálakreppan 2008 var ekki óhjákvæmileg að mati bandarískrar nefndar sem hefur kannað undirrót kreppunnar. Nefndin segir að hana megi rekja til margvíslegra mistaka við framkvæmd opinbers eftirlits, stjórn fyrirtækja og hóflausrar áhættufíknar á Wall Street.

Merwyn King: mesta versnun lífskjara frá 1920

Merwyn King, banka­stjóri Englandsbanka segir að almenningur í Bretlandi geti búizt við mestu versnun lífskjara frá 1920 og að lífskjör verði innan tíðar svipuð og þau voru 2005. Þetta kom fram í ræðu hans í gær, þar sem hann fjallaði um nýjar tölur, sem sýna, að landsframleiðsla Breta drógst sam...

WSJ: Skelfing í fjármálalífi Spánar

Wall Street Journal segir í dag að í fjármálalífi Spánar ríki skelfing vegna ástands í fjármálum og efnahagsmálum á Spáni. Meginvandinn séu ekki skuldir hins opinbera heldur mikil fjárþörf spari­sjóðakerfisins í landinu. Spænska ríkið þurfi að leggja þeim fjármálafyrirtækjum til mikið fé.

Obama: 400 milljarða dollara niðurskurður á 10 árum

Obama Bandaríkja­forseti hvatti til þess í árlegri ræðu Bandaríkjaforseta á bandaríska þinginu (State of the Union Addess) í gær að 400 milljarða dollara niðurskurður yrði á útgjöldum bandaríska ríkisins á næstu 10 árum og sagði að með því mundu opinber útgjöld verða þau lægstu frá forsetatíð Eisen...

Leiðarar

Jean-Claude Juncker og staða smáríkja í ESB

Ein þeirra röksemda, sem aðildarsinnar á Íslandi hafa lengi notað til þess að rökstyðja þá skoðun sína, að Ísland eigi að ganga í Evrópu­sambandið er að það sé nauðsynlegt fyrir okkur að „sitja við borðið“ að láta okkur ekki nægja þann aðgang að mörkuðum í Evrópu, sem við höfum vegna EES-samningsins heldur sé æskilegt að við séum þátttakendur í ákvarðanatöku.

Í pottinum

Samfylkingin á fullu-Gunnar Helgi kominn í spilið!

Það er eiginlega grátbroslegt að fylgjast með æfingum Samfylkingar­innar til þess að komast í kringum dóm Hæstaréttar um stjórnlagaþingið.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS