Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Laugardagurinn 11. júní 2011

«
10. júní

11. júní 2011
»
12. júní
Fréttir

Juncker: „mjúk endur­skipulagning“ óhjákvæmileg í Grikklandi

Jean-Claude Juncker, formaður ráðherraráðs evru-ríkjanna, sagði laugardaginn 11. júní að hann styddi tillögu Þjóðverja um „mjúka endur­skipulagningu“ á skuldum Grikkja með frjálsu framlagi almennra lánardrottna. „Það verður enginn allsherjar endur­skipulagning,“ sagði Juncker við þýska sjónvarpsstöð....

Papandreou: Grikkland gjaldþrota án nýrra aðhaldsaðgerða

Talsmenn grísku ríkis­stjórnar­innar sögðu í gríska þinginu í gær að tillögur hennar um nýjar aðhaldsaðgerðir væru eina leiðin til þess að koma í veg fyrir gjaldþrot Grikkklands og yrðu samþykktar sem lög frá gríska þinginu fyrir lok júnímánaðar. Sósíalista­flokkur Papandreous hefur 156 þingsæti af 300 á gríska þinginu.

Tilfinningaþrúngin vörn Schauble í þýzka þinginu fyrir evruna

Wolfgang Schauble, fjármála­ráðherra Þýzkalands, flutti að sögn Irish Times, tilfinningaþrungna ræðu í þýzka þinginu í gær í umræðum um ályktun þingsins, vegna Grikklands, sem sagt er frá í annarri frétt hér á Evrópu­vaktinni, þar sem hann sagði að Þjóðverjar hefðu hagnast mest á evrunni og þess vegna væri ábyrgð þeirra mest allra að standa vörð um hana.

Þýzka þingið hvetur til aðildar einkaaðila að aðgerðum í Grikklandi

Þýzka þingið hefur samþykkt ályktun, sem ekki er bindandi fyrir ríkis­stjórn landsins, þar sem hvatt er til þess að lánardrottnar Grikklands í einkageiranum taki á sig að hluta til kostnað við nýjar björgunaraðgerðir gagnvart Grikklandi. Þetta kemur fram í Wall Street Journal í dag.

Lena Espersen hefur diplómatíska sókn

Lene Espersen, utanríkis­ráðherra Dana, hefur hafið mikla diplómatíska sókn til þess að útskýra afstöðu Dana til landamæra­eftirlits gagnvart nágrannþjóðum sínum en þó sérstaklega gagnvart Þýzkalandi.

Leiðarar

Sanderud sendir Íslendingum enn tóninn - er á förum frá ESA

Eftirlits­stofnun EFTA (ESA) er við sama heygarðshornið og áður í Icesave-málinu þótt íslenska þjóðin hafi hafnað því í þjóðar­atkvæða­greiðslu að ganga í ábyrgð fyrir einkarekinn banka sem starfaði á eigin ábyrgð og trygginga­sjóðs innstæði­eigenda.

Í pottinum

Jóhanna! Hvað ætli valdi hagstæðum vaxta­kjörum Íslands?

Eitt af því, sem ráðherrar ríkis­stjórnar hafa lýst sérstökum fögnuði yfir í sambandi við skulda­bréfaútboð ríkisins eru tiltölulega hagstæð vaxta­kjör á þeim bréfum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS