Miðvikudagurinn 19. júní 2013

Fimmtudagurinn 27. október 2011

«
26. október

27. október 2011
»
28. október
Fréttir

Olla Rehn falin evru-ábyrgð í framkvæmda­stjórn ESB

Framkvæma­stjórn ESB hefur tilnefnt Finnan Olla Rehn, efnahagsmála­stjóra sinn, sem fyrsta varaforseta sinn og falið honum að hafa stjórn á málum fyrir sína hönd varðandi evruna.

Safnar fé í evru-björgunar­sjóð í Kína og Japan

Klaus Regling, forstöðumaður björgunar­sjóðs evrunnar, EFSF, verður í Peking föstudaginn 28. október til viðræðna um „um efnahagsvanda Evrópu og nýlegar aðgerðir til að sigrast á honum“ segir stuttri í tilkynningu frá sendiráði ESB í Peking. Í frétt Le Figaro um ferð Reglings er bent á að fulltrúi...

Bankar í Grikklandi verða þjóðnýttir tímabundið

Papandreou, forsætis­ráðherra Grikkja segir að Grikkir geti staðið undir skuldum sínum eftir 50% afskriftir af þeim. Stjórnar­andstæðingar í Grikklandi lýsa efasemdum um það að sögn ekathimerini og telja, að það takist ekki nema afgangur verði af rekstri ríkis­sjóðs og hagvöxtur í landinu. Bankar og lífeyris­sjóðir í Grikklandi tapa miklu fé vegna afskriftanna.

Berlingske Tidende: Skref í rétt átt en margir lausir endar segja danskir hag­fræðingar

Þetta er skref í rétta átt en of margir lausir endar enn, segja tveir hag­fræðingar, sem Berlingske Tidende talar við í morgun um niðurstöður leiðtogafundar evruríkjanna í nótt. Jacob Graven, aðalhag­fræðingur Sydbank segir í samtali við Berlingske að upphæðir séu í lægri kantinum og upplýsingar skorti um hvaðan peningarnir eigi að koma.

Markaðir tóku rækilega við sér í morgun

Markaðir tóku rækilega við sér í Evrópu í morgun eftir niðurstöður leiðtogafundar evruríkjanna í nótt. Þannig opnaði London með 2,01% hækkun, Frankfurt með 3,46% og París með 3,51%. Í nótt hækkaði Hong Kong um 3,26% og Japan um 2.04%.

Evru-leiðtogar ná samkomulagi - skref til lausnar evru-vandans segir Merkel

Leiðtogar evru- ríkjanna náðu markverðum árangri til að leysa skuldavanda evru-svæðisins á fundi sem lauk í morgunsárið fimmtudaginn 27. október í Brussel. Þeir ákváðu meðal annars að lánardrottnar Grikkja yrðu að axla sjálfir 50% af því sem þeir hafa lánað. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir...

Leiðarar

Markvert skref í Brussel - vandinn enn óleystur

Leiðtogar evru-landanna hafa komið sér saman um þríðhliða aðgerð í viðleitni sinni til að ná tökum skuldavandanum á evru-svæðinu. Í fyrsta lagi að afskrifa skuldir Grikkja um 50% í stað 21% eins og áður hafð verið um samið.

Pistlar

ESB-aðildar­viðræður á röngu róli

Morgunblaðið minnir á það í leiðara 27. október að Ŝtefan Füle, stækkunar­stjóri ESB, hafi áréttað í heimsókn sinni til Íslands 18. og 19. október „að ekki væri ætlast til að ríki sæktu um aðild að sambandinu nema skýr vilji væri til inngöngu. Viðræðurnar við sambandið þyrftu að fara fram á ...

Í pottinum

Er lækkun launa svona eftirsóknarverður kostur að mati ASÍ?

Á sama tíma og einn helzti sér­fræðingur í Bretlandi um alþjóðleg efnahagsmál, Martin Wolf, blaðamaður á Financial Times, kemur til Íslands og lýsir þeirri skoðun, að sjálfstæður gjaldmiðill hafi gefizt okkur vel, kemur Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ fram á sjónarsviðið og krefst þess að við tökum upp evru.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS