| « 21. febrúar |
■ 22. febrúar 2012 |
» 23. febrúar |
ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum
ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...
Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi
myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsímaeigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bílstjóra. Þegar bílstjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.
Danir greiða ekki þjóðaratkvæði um ríkisfjármálasamning ESB
Danska dómsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðaratkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.
Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkisáðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.
Franska ríkisstjórnin þurrkar úr orðið „mademoiselle“ að ósk feminista
Notkun á orðinu „mademoiselle“ eða „fröken“ hefur verið bönnuð á opinberum skjölum í Frakklandi samkvæmt fyrirmælum frá François Fillon, forsætisráðherra Frakklands til allra ráðuneyta landsins. Nú ber að ávarpa allar konur í Frakklandi sem „madame“ á sama hátt og karlmenn eru ávarpaði „monsieur“ án tillits til þess hvort þeir eru kvæntir eða ekki.
Mótmælafundir í Grikklandi í dag
Nokkrir mótmælafundir hafa verið boðaðir í Grikklandi í dag vegna samkomulags fjármálaráðherra evruríkjanna í gærmorgun. Tvö stærstu verkalýðsfélögin í Grikklandi efna til fundar fyrir framan þinghúsið kl.
Evans-Pritchard: Næst verða ríkisstjórnir að afskrifa lán til Grikklands
Ambrose Evands-Pritchard, aþjóðlegur viðskiptaritstjóri Daily Telegraph (sem óskaði Íslendingum til hamingju á dögunum með góðan árangur í efnahagsmálum)segir í blaði sínu í dag að nýja neyðarlánið til Grikkja hafi aðeins frestað vandanum í nokkra mánuði.
Grikkland: Ólík viðbrögð leiðtoga stjórnmálaflokka
Viðbrögð forystumanna í grískum stjórnmálum við samkomulaginu í Brussel í gærmorgun um neyðarlán II til Grikklands eru misjöfn. Antonis Samaras, leiðtogi Nýja lýðræðisflokksins, sagði samkomulagið tryggja greiðslugetu Grikklands og framtíð þess í Evrópu og að það greiddi leiðina að kosningum í apríl.
Evrukreppan er orðin stjórnmálakreppa og þjóðfélagskreppa
Það er alveg ljóst, að með öðru neyðarláni til Grikkja, sem samþykkt var á fundi fjármálaráðherra evruríkjanna í Brussel, snemma í gærmorgun, þriðjudagsmorgun, eftir nær 14 klukkustunda fund, hefur enginn vandi verið leystur annar en sá, að Grikkir lenda ekki í greiðslufalli í marz.
Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnarskrá 29. júlí 2011. Þingnefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sérfræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður, skrifar mjög athyglisverða grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann færir sterk rök að því að mikil mistök hafi verið gerð við kaup nýju bankanna á eignum gömlu bankanna og að þær hafi verið keyptar of háu verði án þess að nokkrir fyrirvarar hafi verið gerðir. Þi...