Merkel og Hollande árétta ágreining sinn við upphaf ESB-leiðtogafundar
Angela Merkel Þýskalandskanslari og François Hollande Frakklandsforseti leyndu ekki ágreiningi sínum um evru-skuldabréf við upphaf óformlegs ESB-leiðtogafundar í Brussel að kvöldi miðvikudags 23. maí. Angela Merkel dró enga dul á að hún ætlaði að verja afstöðu sína og stefnu til að leysa vanda evr...
Štefan Füle á leið til Íslands í annað sinn - undirbýr næstu ríkjaráðstefnu í lok júní
Štefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, kemur í annað sinn til Íslands fimmtudaginn 24. maí og dvelst til föstudags 25. maí. „Viðræðurnar við Íslendinga ganga vel. Við stefnum að því að opna fleiri kafla á næstu ríkisráðstefnu 22. júní. Það sem áunnist hefur til þessa lofar góðu um framhaldi...
Framkvæmdastjórn Heimssýnar hefur boðið Hermanni Sausen, sendiherra Þýskalands á Íslandi, til fundar til að ræða mikilvægi þess að íslenska þjóðin fái ráðrúm til að taka sjálfstæða ákvörðun um afstöðu sína til Evrópusambandsins.
Bændasamtök Íslands segja að um „fjarstæðukennda nálgun“ sé að ræða hjá íslenskum stjórnvöldum gagnvart Evrópusambandinu sé ætlun þeirra að leggja fram áætlun um innleiðingu krafna ESB um aðlögun íslenskra landbúnaðarkerfisins án þess að fyrir liggi samningsafstaða af Íslands hálfu um landbúnaðarmál.
Sarrazin: Þjóðverjar gíslar annarra evruríkja og píndir til að borga vegna sektarkenndar
Þjóðverjar eru gíslar annarra evruríkja og eru píndir til að borga vegna útrýmingar þeirra á Gyðingum í heimsstyrjöldinni síðari segir Thilo Sarrazin, fyrrum fulltrúi í bankaráði Bundesbank og meðlimur í þýzka jafnaðarmannaflokknum í nýrri bók, sem heitir „Evrópa þarf ekki evru“. Sami maður vakti up...
Þjóðverjar fá vaxtalaus lán á mörkuðum
Þýzka ríkið selur í dag tveggja ára skuldabréf með engum vöxtum að fjárhæð um 5 milljarða evra. Það hefur ekki gerzt áður að sögn Bundesbank að Þjóðverjar taki lán án þess að borga nokkra vexti. Þá er gert ráð fyrir að Þýzkaland selji 1,5 milljarð evra í 10 ára bréfum með neikvæðum vöxtum að því er fram kemur í Financial Times í dag.
Ítalía: Flokkur Beppe Grillo gæti verið orðinn þriðji stærsti
Í seinni umferð sveitarstjórnakosninga á Ítalíu um síðustu helgi biðu hefðbundnir stjórnmálaflokkar mikið afhroð að því er fram kemur í Financial Times. Sérstaklega á það við um flokk Berlusconis og Norðurbandalagið. Berlusconi hefur ekki tjáð sig um úrslitin en sumir flokksmenn hans kenna stuðningi flokksins við ríkisstjórn Mario Montis um.
Hollande og Rajoy hittast fyrir fund ESB-leiðtoga í dag-Þjóðverjar andvígir útgáfu evrubréfa
Leiðtogar ESB koma saman til óformlegs fundar í kvöld en Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar kemur til Parísar í dag og mun eiga fund með Francois Hollande, forseta Frakklands fyrir fundinn. Reuters segir að þetta sé tákn um þá breytingu, sem orðið hafi með kjöri Hollande því að slíkir fundir til undirbúnings leiðtogafundum hafi jafnan farið fram milli Þjóðverja og Frakka þar til nú.
Yfirlýsing Guðfríðar Lilju skapar þáttaskil
Það eru að sjálfsögðu meiriháttar pólitísk tíðindi, að stjórnarflokkarnir hafa ekki lengur meirihluta í utanríkismálanefnd Alþingis í ESB-málum. Bókun Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, þingmanns VG á fundi nefndarinnar í gær markar ákveðin þáttaskil í þessari vegferð.
ESB: Þingmenn VG tvístruð hjörð- verkefnið að finna samstöðu um leið út
Staðan á Alþingi í Evrópusambandsmálum er að verða býsna flókin. Telja verður víst, að ef tillaga um aðildarumsókn að ESB yrði lögð fyrir þingið nú yrði hún felld.