Laugardagurinn 25. maí 2013

Miðvikudagurinn 6. júní 2012

«
5. júní

6. júní 2012
»
7. júní
Fréttir

Efnahagsmála­ráðherra Spánar reynir að minnka spennu - engra aðgerða þörf vegna banka fyrr en undir lok júní

Luis de Guindos, efnahagsmála­ráðherra Spánar, hefur slegið á allar vangaveltur um að spænska stjórnin muni grípa til tafarlausra neyðarráðstafana með hjálp annarra til að bjarga spænska bankakerfinu. Ráðherrann segir að enn vinni sér­fræðingar ríkis­stjórnar­innar að því að meta stöðu bankanna og skýrsla þeirra liggi ef til vill fyrir undir lok júní. Þá verður efnt til leiðtogafundar ESB-ríkjanna.

Bænda­samtökin óska skýringa Össurar á ummælum formanns viðræðu­nefndar um sérlausnir í landbúnaðarmálum - viðhorf ESB ekki kynnt bændum

Bænda­samtök Íslands (BÍ) hafa ritað Össuri Skarphéðinssyni utanríkis­ráðherra bréf í tilefni af ummælum Stefáns Hauks Jóhannessonar, sendiherra og formanns viðræðu­nefndar Íslands gagnvart ESB, um að ESB hafi gefið til kynna að það sé tilbúið til sérlausna fyrir íslenskan landbúnað.

Spánn: Ný útfærsla á neyðaraðstoð við banka til umræðu

Embættismenn í Brussel ræða nú möguleika á því að móta annars konar neyðaraðstoð fyrir Spán, sem mundi byggja á aðstoð við spænska banka með mjög takmörkuðum skilyrðum. Spænska ríkis­stjórnin kynni að vera opnari fyrir slíkri aðstoð en neyðarláni af því tagi, sem Grikkland, Portúgal og Írland hafa fengið.

Seðlabanki Evrópu: Stýrivextir óbreyttir-engin skulda­bréfakaup-ekki frekari lánveitingar

Bankaráð Seðlabanka Evrópu tók í dag ákvörðun um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 1%. Jafnframt hefur bankinn hafnað kröfum um að hann hefji á ný kaup á ríkisskulda­bréfum evruríkja til þess að lækka lántökukostnað Spánar. Bankinn hefur líka hafnað hugmyndum um að hann endurtaki lánveitingar samtals ...

FT: Þjóðverjar hafna óskum Spánverja um beina aðstoð EFSF við spænska banka

Forysta þing­flokks Kristilegra demókrata í Bundestag hafnar með öllu, að spænskir bankar geti leitað aðstoðar til neyðar­sjóðs ESB án milligöngu spænsku ríkis­stjórnar­innar. Þetta kom fram hjá Volker Kauder, þing­flokksformanni CDU/CSU eftir tveggja daga ferð til Brussel að sögn Financial Times í morgun.

Madrid: Forsætis­ráðherrann býr sig undir að þiggja aðstoð ESB - deilt við Þjóðverja um aðferðafræði

Forsætis­ráðherra Spánar leitar aðstoðar hjá öðrum ríkjum innan ESB og biður þau um að „hjálpa þjóð í vanda“ segir í franska blaðinu Le Figaro miðvikudaginn 6. júní. Spánn hafi ekki lengur aðgang að fjármálamörkuðum og ríkis­stjórn landsins eigi allt undir velvilja annarra segir í blaðinu. Þetta blas...

BBC: ESB kynnir tillögur um að verja skattgreiðendur fyrir falli banka

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins hefur um skeið unnið að smíði tillagna, sem eiga að koma í veg fyrir að peningar skattgreiðenda verði notaðir til að bjarga bönkum, sem komnir eru í fjárhagsvandræði. Markmið þessara tillagna er að tryggja, að kostnaður við fall banka lendi á hluthöfum og lánardrottnum bankanna en að kostnaður skattgreiðenda verði lág­markaður.

Moody's lækkar lánshæfiseinkunn sjö þýskra banka

Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunn nokkurra þýskra banka, þar á meðal Commerzbank, annars stærsta banka landsins.

Leiðarar

ESB er marghöfða þurs og í bullandi mótsögn við sjálft sig

Evrópu­sambandið er marghöfða þurs. Það kemur fram aftur og aftur. Einn segir þetta, annar segir hitt. Kannski er ekki við öðru að búast þegar reynt er að samræma afstöðu 27 aðildarríkja. Dæmi um þetta er það sem hefur verið að gerast innan Evrópu­sambandsins í afstöðu þess til falls banka.

Í pottinum

Þjóðarleiðtogar sem lengst hafa setið-Ólafur Ragnar í 21. sæti af 50-skoðið listann!

Það er til listi yfir þá þjóðar­leiðtoga, sem ekki eru konungbornir en lengst hafa setið.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS