Þverpólitískt samkomulag í Berlín um skatt á fjármagnsfærslur
Þýska ríkisstjórnin og helstu stjórnarandstöðuflokkarnir hafa komist að meginsamkomulagi um skatt á fjármagnsfærslur.
Merkel og Cameron segja ríkisfjármálasamninginn ekki leysa evru- vandann
Angela Merkel Þýskalandskanslari tók á móti David Cameron, forsætisráðherra Breta, í Berlín fimmtudaginn 7. júní. Þau ræddu hvernig bjarga ætti ESB úr evru-vandanum. Fundur þeirra var liður í ráðstefnu sem Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, sat einnig auk 93 námsmanna. Merkel og Cameron vor...
Innanríkisráðherrar Schengen-ríkjanna ákveða að styrkja innviði samstarfs síns
Innanríkisráðherrar ESB-ríkjanna tóku fimmtudaginn 7. júní ákvörðun um að stofna til sameiginlegrar miðstöðvar í því skyni að sporna gegn tölvuglæpum auk þess að efla aðgerðir gegn farandglæpamönnum. Nú verður stofnuð ný miðstöð gegn tölvuglæpum auk þess sem komið verður á fót alheimsbandalagi gegn ...
Kýpurbanki vill stofna dótturfyrirtæki í Bretlandi og komast inn í brezkt innistæðutryggingakerfi
Kýpurbanki (Bank of Cyprus) hefur nú sótt um að útibú bankans í Bretlandi verði breytt í dótturfyrirtæki, sem mundi falla undir eftirlit FSA, brezka fjármálaeftirlitsins og njóta þar með sömu innistæðutrygginga og brezkir bankar eða 85 þúsund punda fyrir hvern viðskiptamann.
Hinn venjulegi Frakklandsforseti á ólöglegum hraða
François Hollande leggur áherslu á að hann sé „venjulegur“ forseti Frakklands, það er að hann hagi sér eins og hinn almenni borgari og hið sama eigi við um ríkisstjórn hans. Ráðherrar megi til dæmis ekki aka yfir á rauðu ljósi með aðstoð lögreglu nema við alveg sérstakar aðstæður, þeir verði með öðrum orðum að fara að almennum umferðarreglum.
Euobserver: Tillögur Barnier munu vekja sérstaka athygli á Írlandi
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í gær nýjar tillögur (eins og boðað var hér á Evrópvaktinni í gær)sem hafa það að markmiði að koma í veg fyrir að skattgreiðendur verði að hlaupa undir bagga með bönkum. Michel Barnier, sá fulltrúi í framkvæmdastjórn ESB, sem hefur með fjármálageirann að gera sagði af því tilefni að ESB ætlaði að rjúfa tengslin á milli banka og opinbera geirans.
Merkel boðar tveggja hraða ESB - vill að umboð verði samþykkt fyrir lok júní
Angela Merkel Þýskalandskanslari sagði fimmtudaginn 7. júní að hún mundi vinna að því að efla póltíska samvinnu innan Evrópusambandsins með þeim þjóðum sem það vildu, jafnvel þótt það leiddi til „tveggja hraða“ samskipta. „Við verðum að efla samstarfið innan ESB – við þurfum ríkisfjármálabandalag ...
Málflutningur formanns utanríkismálanefndar alþingis er óboðlegur
Í rúm tvö ár hefur allt leikið á reiðiskjálfi innan Evrópusambandsins vegna evru-vandræðanna.
Er Alþingi að breytast í drullupoll?
Í gamla daga, áður en götur í Reykjavík og nálægum sveitarfélögum voru malbikaðar voru svokallaðir drullupollar út um allt. Malargötur voru holóttar og þegar rigndi mynduðust drullupollar. Þá var það stundum skemmtan lítilla stráka að fara út í þessa drullupolla og kasta drulluleðju hver á annan. Svo voru allar götur malbikaðar og drullupollar heyrðu sögunni til.