« 23. september |
■ 24. september 2014 |
» 25. september |
Cameron talar óvarlega um símtal við Elísabetu drottningu vegna Skotlands
David Cameron, forsætisráðherra Breta, þykir hafa talað óvarlega um Bretadrottningu við Michael Bloomberg, fyrrverandi borgarstjóra, þegar þeir hittust í New York þriðjudaginn 23. september og ræddu saman án þess að vita að sjónvarpsmenn Sky-stöðvarinnar fylgdust með þeim. Cameron heyrðist segja ...
Á stjórnmálavakt Evrópuvaktarinnar í dag er fjallað um stöðu hins nýja flokks, Valkosts fyrir Þýzkaland (AfD), sem á nú vaxandi fylgi að fagna skv. úrslitum svæðisbundinna kosninga að undanförnu og einnig skv. nýrri skoðanakönnun um fylgi þýzku flokkanna á landsvísu. Athyglisvert er að AfD sækir fylgi sitt til kjósenda á bæði hægri og vinstri kanti stjórnmálanna.