« 28. október |
■ 29. október 2014 |
» 30. október |
Svíþjóð: Mælt með NATO-aðild í opinberri skýrslu - rauðgræna ríkisstjórnin hafnar þeirri leið
Samstarf Svía við Finna er til þess fallið að styrkja varnir Svíþjóðar en leysir ekki vanda þjóðarinnar í varnar- og öryggismálum. Í ljósi þess að hættan á hernaðarátökum eykst eiga Svíar og Finnar að huga að aðild að NATO til að njóta öryggistryggingarinnar sem hún veitir.
Tap á rekstri Deutsche Bank-málssóknir úr mörgum áttum
Deutsche Bank tilkynnti í morgun að bankinn hefði verið rekinn með 92 milljóna evra tapi á þriðja fjórðungi þessa árs. Meginástæðan er sú að bankinn hefur aukið varúðarfærslur vegna sekta og annars lagalegs kostnaður úr 2,2 miljörðum evra á öðrum fjórðungi í 3 milljarða evra á þeim þriðja. Sótt er að Deutsche Bank úr mörgum áttum.