« 1. janúar |
■ 2. janúar 2015 |
» 3. janúar |
ESB/EES-reglur um orkusparnað vegna kaffivéla koma til framkvæmda
Um áramótin tóku nýjar reglur gildi á ESB/EES-svæðinu sem miða að því að spara orku með að minnka rafmagnsnotkun kaffivéla þar sem filter er notað við að laga drykkinn. Í nýju reglunum segir að sé ekki hitakanna á kaffivél með filter verði vélin að slökkva á sér sjálf eftir 40 mínútur frá því að síðasti dropinn féll í könnuna.
Olíuverð hélt áfram að lækka í morgun
Í morgun, föstudagsmorgun 2. janúar 2015, hélt olíuverð á heimsmarkaði áfram að lækka að sögn Reuters-fréttastofunnar. Olíuverð lækkaði í morgun í nálægt 57 dollara á tunnu. Auk alls annars sem veldur lækkun olíuverðs er ljóst að eftirspurn í Kína hefur dalað vegna minnkandi umsvifa í framleið...