Miðvikudagurinn 22. febrúar 2012

Nú má Össur fara að vara sig-hann er í skotmáli


27. janúar 2012 klukkan 10:14
mbl.is
Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðadóttir.

Enn æsist leikurinn í Samfylkingunni. Á Alþingi í gær lýsti Jóhanna Sigurðardóttir því yfir að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra og fyrrverandi formaður Samfylkingar, gæti verið með vangaveltur um framtíðarleiðtoga flokksins „út og suður“, „eins og honum sýndist“, að því er fram kemur í fréttum RÚV.

Tónninn í garð Össurar fer ekki fram hjá neinum. Þeim fjölgar stöðugt í forystusveit Samfylkingar, sem Jóhanna sendir „út og suður“. Fyrst var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir send út í hafsauga. Hún er gleymd. Hana má ekki nefna. Óhugsandi var að sýna henni einhvern trúnað heima fyrir. Að lokum tókst að finna fyrir hana starf - í Afganistan.

Næst var Kristján Möller sendur út í kuldann. Hann lét ekki að stjórn. Í kjölfarið var Árna Páli sparkað. Hann lét heldur ekki að stjórn. Með honum fylgdi Kristrún Heimisdóttir-varasöm kona.

Svo kom röðin að Ástu Ragnheiði. Það er flóknara að losna við hana. Hún hefur líklega þingmeirihluta á bak við sig, þótt það sé annar meirihuti en sá, sem Jóhanna styðst við.

Nú er komið að Össuri. Nú má hann fara að vara sig. Það getur verið hættulegt fyrir Össur að vera of mikið í útlöndum á næstunni. Það er auðveldara að grafa undan þeim, sem eru mikið í burtu.

En yfirlýsingar Jóhönnu í gær, nokkrum vikum eftir að Össur lét orð falla um nauðsyn á nýrri forystu í Samfylkingu, sem Jóhanna hefur ekki sagt orð um til þessa, benda til að Össur sé næstur á dagskrá.

Undirbúningur að brennimerkingu hans er hafinn.

Það getur hins vegar orðið erfitt að framkvæma hana. Össur er hættulegur. Reynslan sýnir að hann hefur mörg pólitísk líf.

Kannski fleiri en Jóhanna?

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Björn Bjarnason Pistill

Meirihluti alþingis skilar auðu um stjórnar­skrárbreytingar - kaupir Þór Saari til að bjarga ríkis­stjórninni

Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnar­skrá 29. júlí 2011. Þing­nefnd, stjórnskipunar- og eftirlits­nefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sér­fræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Leikur Steingrímur J. tveimur skjöldum vegna uppsagnar for­stjóra fjármála­eftirlitsins?

Frá því hefur verið skýrt að fimmtudaginn 16. febrúar hafi stjórn fjármála­eftirlitsins (FME) boðið Gunnari Þ. Andersen, for­stjóra eftirlitsins, starfslokasamning. Á vefsíðunni visir.is segir 17. febrúar: „Samkvæmt heimildum fréttastofu tilkynnti Aðalsteinn Leifsson, formaður stjórnar FME, Gun...

Verkalýðshreyfingin og hagsmunir fólksins

Það er athyglisvert að verkalýðshreyfngin bregst ekkert við grein forystumanna Hagsmuna­samtaka heimilanna, sem birtist í Morgunblaðinu sl. laugardag og í eitthvað styttri útgáfu í Fréttablaðinu sama dag. Þar er þó fjallað um það grundvallar­atriði að verkalýðs­samtökin hafi ekki tekið að sér að fjalla um hagsmunamál, sem vega mjög þungt í lífskjörum launþega á Íslandi nú um stundir.

Ólafur Ragnar valdar Bessastaði - vill hann sitja þar lengur?

Nú reynir á hvort Ólafur Ragnar Grímsson finnur góðan leik úr þeirri stöðu sem skapast hefur á tæpum tveimur mánuðum sem liðnir eru frá því að hann tilkynnti í nýársávarpi að hann ætlaði að snúa sér að öðru en forsetastörfum eftir kosningar í lok júní 2012. Aðeins tæpir þrír klukkutímar liðu frá því...

Er danski Íhalds­flokkurinn að deyja?-Hvað er hægt að læra af ólíkri vegferð íhalds­flokkanna í Danmörku og á Bretlandi?

Stjórnmála­flokkar eru ekki eilífir. Danski Íhalds­flokkurinn, sem er 97 ára gamall, kann að standa frammi fyrir þeim veruleika að því er fram kemur í Berlingske Tidende í dag. Fjórði hver Dani er þeirrar skoðunar að innan 10 ára verði Íhalds­flokkurinn fallinn út af þingi.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS