Þriðjudagurinn 18. júní 2013

Það tók einn og hálfan tíma að koma Bob Diamond frá


4. júlí 2012 klukkan 07:00
Bob Diamond

Örlög Bob Diamond, aðalforstjóra Barclaysbanka í Bretlandi voru ráðin í símtali seint á mánudagskvöld, 2. júlí.Hann var búinn að vera í æfingu allan mánudaginn til þess að búa sig undir vitnisburð fyrir fjárhagsnefnd brezka þingsins vegna vaxtasvindlsins, sem banki hans var sektaður fyrir á dögunum og hefur sett allt á annan endann í brezkri pólitík.

Kl. 22.00 að brezkum tíma í fyrrakvöld hringdu tveir menn í Marcus Agius, stjórnarformann bankans, sem tilkynnt hafði fyrirhugaða afsögn sína fyrir helgi. Annar var Sir Mervyn King, aðalbankastjóri Englandsbanka, hinn var Turner, lávarður, stjórnarformaður FSA, brezka fjármálaeftirltsins. Þeir höfðu borið saman bækur sínar. Þeir sögðu Agius á þann veg, sem ekki var hægt að misskilja, að Bob Diamond yrði að segja af sér.

Agius settist við símann og hringdi í skyndi í Diamond og síðan aðra stjórnarmenn í bankanum. Í kjölfarið á þessum samtölum tók Diamond ákvörðun um að segja af sér, sem hann gerði í gærmorgun, þriðjudagsmorgun.

Um kl. 23.30 á mánudagskvöld hringdi Agius í George Osborne, fjármálaráðherra og tilkynnti honum niðurstöðuna. Það tók einn og hálfan tíma að ganga frá málinu, eins og þessar tímasetningar sýna.

Þessi frásgön byggir á frétt í Financial Times og þarf vart að draga í efa, að blaðið hefur traustar heimildir fyrir henni.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Það þarf að gera úttekt á viðhorfum annarra þjóða til Íslands í hruninu 2008 - og síðan

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar­innar er eitthvað viðkvæmur fyrir því, að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi verið gagnrýninn í garð sumra nágrannaþjóða okkar í 17. júní ræðu sinni. Af því tilefni segir Árni Páll í samtali við Fréttablaðið í dag: "Ég er sammála því að kröfur Breta og Holle...

Fjöldi ólíkra tungumála getur komið í veg fyrir stofnun Bandaríkja Evrópu

Hér á þessum vettvangi var vikið að því fyrir helgi, að staða Þýzkalands væri orðin að lykilatriði í umræðum í Evrópu um framtíð Evrópu­sambandsins og að það væri reyndar skoðun sumra fræðimanna, að staða þýzkumælandi fólks hefði verið kjarninn í öllum átökum í Evrópu öldum saman.

Deilur innan ESB-viðræðu­nefndar um fullveldi aþingis - nefndin leyst frá störfum

Málstaður ESB-aðildarsinnar varð undir í þingkosningunum 27. apríl 2013. ESB-flokkurinn, Samfylkingin, setti Evrópumet í fylgishruni. ESB-ríkis­stjórninni var kastað út í hafsauga. Meirihluti nýkjörins þings hefur aðra afstöðu til ESB-málsins en meirihluti þess þings sem sat. Hinn nýi meirihluti hefu...

Snúast átökin í Evrópu um stöðu þýzkumælandi fólks?

Nú þegar gert hefur verið ótímabundið hlé á aðildarviðræðum við Evrópu­sambandið skapast kannski betri aðstæður til að ræða málefni þess í heild hér á Íslandi en verið hafa vegna þess þrýstings sem aðildarumsóknin og aðildar­viðræður hafa sett á slíkar umræður fram að þessu.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS