
Því fleiri orð, sem forystumenn Vinstri grænna, þeir Steingrímur J. Sigfússon og Árni Þór Sigurðsson, hafa um makríldeiluna, þeim mun augljósara verður að þeir eru að undirbúa uppgjöf í málinu. Það kemur ekki á óvart með Árna Þór, sem er aðildarsinni en það kemur þrátt fyri allt á óvart með Steingrím J.
Þeir trúnaðarmenn VG, sem hafa gert sér sterkar vonir um að Steingrímur J. muni nota makríldeiluna til að sprengja VG út úr aðildarferlinu standa frammi fyrir þeim raunhæfa möguleika, að þeir verði fyrir miklum vonbrigðum.
En leikurinn er ekki tapaður. Það er enn ráðrúm til að veita Steingrími J. það aðhald innan flokks að hann þori ekki í þann leiðangur, sem Árni Þór vill fara.
Eina leiðin til þess að koma í veg fyrir að Steingrímur J. svíki í makrílmálinu (sjá m.a. viðtal við hann í Fréttablaðinu í gær) er sú, að grasrótin í VG láti hann finna rækilega fyrir því í sumar að hún taki ekki þátt í þeim svikum.
Hefur grasrótin innan VG kraft í sér til að rísa upp?
Hvar er Smugan nú?!
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Svíþjóð: „Þetta er ekki skipulagður aðskilnaður en...“
Ólætin í úthverfum Stokkhólms hafa vakið meiri athygli fjölmiðla í öðrum löndum en hér. Þó mætti ætla að þessir atburðir vektu athygli hér vegna þess að við erum nákomnari öðrum Norðurlandaþjóðum en flestum öðum þjóðum. Það tók fjölmiðla hér nokkra daga að átta sig á að eitthvað væri að gerast í Svíþjóð. Þessi ólæti (óeirðir eru of sterkt orð) hafa nú staðið í bráðum eina viku.
VG: Katrín þakkar og lýsir árangri en gleymir að skýra úrslit þingkosninganna á
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sendi félögum sínum í flokknum þakkarkveðju í tilefni stjórnarskiptanna fimmtudaginn 23. maí. Þar sagði hún ljóst að árangur ríkisstjórnar Vinstri-grænna og Samfylkingar hefði verið „mikill“. Fyrst og fremst hefði náðst „gríðarlegur árangur í ríkisfjármálum án þess ...
Sumarfríin verða að bíða til næsta árs!
Viðbrögð við nýrri ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa yfirleitt verið jákvæð og forystumenn stjórnarandstöðunnar hafa sýnt hófsemd í ummælum sínum, sem er skynsamlegt hjá þeim. Segja má, að einu hnökrarnir, sem upp hafa komið snúi að umverfisráðuneytinu. Ráðstafanir varðandi það hafa vakið tortryggni.
Ný ríkisstjórn fær mikinn meðbyr í upphafi
Fólkið í landinu bindur miklar vonir við nýja ríkisstjórn og ekki er ólíklegt að stjórnarsáttmáli stjórnarflokkanna tveggja muni ýta undir þær vonir. Það er þess vegna ástæða til að ætla að nýr kraftur færist í þjóðlífið á næstu vikum. Fráfarandi ríkisstjórn hefur á seinni hluta kjörtímabils hennar verið eins og þungt farg á þjóðinni.