Þriðjudagurinn 5. júlí 2022

Ef Jón Gnarr meinar það sem hann segir er pólitísk staða í Reykjavík gjörbreytt


30. október 2013 klukkan 13:41
Jón Gnarr

Ef taka ber yfirlýsingar Jóns Gnarr, borgarstjóra í morgun, alvarlega (og þetta er sagt vegna þess að hann hefur komizt langt í pólitík á því að skapa óvissu um hvort hann væri að grínast eða tala í alvöru) er ljóst að yfirlýsing hans um að hann gefi ekki kost á sér á ný til borgarstjórnar og að Bezti flokkurinn renni saman við Bjarta Framtíð, mun gjörbreyta stöðu mála í borgarstjórnarkosningunum næsta vor.

Í fyrsta lagi er ljóst að Jón Gnarr nær til fólks á annan veg en nokkur annar í Bezta flokknum gerir eða hefur gert. Og jafnframt að aðrir flokkar hafa ekki boðið upp á frambjóðanda, sem hefur náð eða nær til fólks með sama hætti.

Í öðru lagi fer ekki á milli mála að um leið og Bezti flokkurinn rennur saman við Bjarta framtíð er orðinn til alvarlegur keppinautur við Samfylkingu á miðju-vinstri kanti stjórnmálanna, sem getur orðið henni skeinuhættur.

Allt þýðir þetta að vígstaða Sjálfstæðisflokksins styrkist en Samfylkingar veikist.

Meini Jón Gnarr það sem hann segir hefur hann með einu útvarpsviðtali gjörbreytt stjórnmálaviðhorfum í Reykjavík.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Klofingur meðal kristilegra í Þýskalandi vegna skuldavanda Grikkja

Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði þriðjudaginn 31. mars að viðræður við Grikki um skuldamál væru svo flóknar að niðurstöðu væri ekki að vænta fyrr en undir lok apríl. Spenna vegna málsins er ekki aðeins á stjórnmálavettvangi í Grikklandi heldur einnig annars staðar á evru-svæðinu. Hefur s...

Alexis Tsipras: Ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf

„Við leitum eftir heiðarlegri málamiðlun við lánardrottna en ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf,“ sagði Akexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikkja, í ræðu í gríska þinginu í gær. Hann sagði að Grikkir hefðu lagt fyrir lánardrottna hugmyndir um að koma böndum á smygl á benzíni og tóbaki, eftirlit með fjármagnstilfærslum til erlendra banka og stöðvun vsk-svindls.

Engar haldbærar tillögur um umbætur liggja enn fyrir frá Grikkjum - unnið dag og nótt vegna ótta við greiðsluþrot

Síðdegis mánudaginn 30. mars höfðu evru-ráðherrahópnum og þríeykinu ekki enn borist tillögur grísku ríkis­stjórnar­innar um ráðstafanir til að fullnægja skilyrðum til útgreiðslu á lánsfé svo að bjarga megi Grikklandi frá greiðsluþroti. Ljóst er að niðurstaða um fyrir­greiðslu til Grikkja fæst ekki fyrr...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS