Fimmtudagurinn 21. febrúar 2019

Reuters: Þungamiðja evrópsks framleiðsluiðnaðar hefur færzt til austurs

Og samhliða hafa pólitísk áhrif Þýzkalands aukizt


17. mars 2015 klukkan 08:29
NASA
Gervitunglamynd af Norður-Evrópu.

Þungamiðja framleiðsluiðnaðar í Evrópu hefur færst frá vestri til austurs á aldarfjórðungi. Um það leyti sem Berlínarmúrinn féll teygði hún sig frá Bretlandi yfir til Hollands og Belgíu, Vestur-Þýzkalands og Sviss. Nú, rúmum 25 árum síðar er þessa þungamiðju að finna í Þýzkalandi og hún teygir sig til Póllands og Ungverjalands, Tékklands, Slóvakíu, Austurríkis og Rúmeníu.

Það er í raun þýzkur framleiðsluiðnaður, sem hefur komið sér fyrir í nágrannalöndum Þýzkalands.

Þýzkaland, Holland, Tékkland, Slóvakía og Rúmenía hafa aukið hlutdeild sína í innri viðskipti ESB-ríkja um 5,3% á árunum 2004 til 2013 og í þeirra hópi vegur Þýzkaland mest.

Hlutdeild Bretlands, Frakklands, Írlands, Spánar og Portúgals hefur minnkað í þessum viðskiptum um 4,4%.

Reuters bendir á að þetta hafi gerzt samhliða því að Þýzkaland hefur orðið áhrifamesta ríkið í Evrópu pólitískt séð.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Klofingur meðal kristilegra í Þýskalandi vegna skuldavanda Grikkja

Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði þriðjudaginn 31. mars að viðræður við Grikki um skuldamál væru svo flóknar að niðurstöðu væri ekki að vænta fyrr en undir lok apríl. Spenna vegna málsins er ekki aðeins á stjórnmálavettvangi í Grikklandi heldur einnig annars staðar á evru-svæðinu. Hefur s...

Alexis Tsipras: Ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf

„Við leitum eftir heiðarlegri málamiðlun við lánardrottna en ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf,“ sagði Akexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikkja, í ræðu í gríska þinginu í gær. Hann sagði að Grikkir hefðu lagt fyrir lánardrottna hugmyndir um að koma böndum á smygl á benzíni og tóbaki, eftirlit með fjármagnstilfærslum til erlendra banka og stöðvun vsk-svindls.

Engar haldbærar tillögur um umbætur liggja enn fyrir frá Grikkjum - unnið dag og nótt vegna ótta við greiðsluþrot

Síðdegis mánudaginn 30. mars höfðu evru-ráðherrahópnum og þríeykinu ekki enn borist tillögur grísku ríkis­stjórnar­innar um ráðstafanir til að fullnægja skilyrðum til útgreiðslu á lánsfé svo að bjarga megi Grikklandi frá greiðsluþroti. Ljóst er að niðurstaða um fyrir­greiðslu til Grikkja fæst ekki fyrr...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS