Föstudagurinn 19. ágúst 2022

Mótmæli við nýbyggingu SE í Frankfurt: Kveikt í bílum, dekkjum og öskutunnum


18. mars 2015 klukkan 09:06
Höuðstöðvar Seðlabanka Evrópu í Frankfurt.

Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman við nýbyggingu Seðlabanka Evrópu í Frankfurt í morgun og lentu þar í átökum við lögreglu. Til stóð að Mario Draghi, opnaði bygginguna kl. 11.00 í dag en hún hefur kostað um 1,3 milljarða evra. Kveikt var í nokkrum bílum, götum var lokað með hrúgum af dekkjum og öskutunnum sem kveikt var í. Lögreglan notaði vatnssprautur til þess að reyna að sundra mannfjöldanum. Alla vega einn lögreglumaður hefur særst skv. síðustu fréttum.

Að mótmælunum standa samtök sem nefna sig Blockupy með vísan í Occupy Wall Sreet hreyfinguna en samtökin telja að þátttakendur í mótmælunum hafi verið um 10 þúsund. Reuters segir að þúsundir hafi komið til Þýzkalands frá öðrum aðildarríkjum til að taka þátt í mótmælunum.

Einn mótmælenda sagði við Reuters að þeir væru að mótmæla því að Evrópusambandið, sem ekki kysi ráðamenn sína í lýðræðislegri kosningu væru að hindra störf ríkisstjórnar Grikklands.

Talsmaður lögreglunnar sagði mannfjöldann hafa verið árásargjarnan.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Klofingur meðal kristilegra í Þýskalandi vegna skuldavanda Grikkja

Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði þriðjudaginn 31. mars að viðræður við Grikki um skuldamál væru svo flóknar að niðurstöðu væri ekki að vænta fyrr en undir lok apríl. Spenna vegna málsins er ekki aðeins á stjórnmálavettvangi í Grikklandi heldur einnig annars staðar á evru-svæðinu. Hefur s...

Alexis Tsipras: Ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf

„Við leitum eftir heiðarlegri málamiðlun við lánardrottna en ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf,“ sagði Akexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikkja, í ræðu í gríska þinginu í gær. Hann sagði að Grikkir hefðu lagt fyrir lánardrottna hugmyndir um að koma böndum á smygl á benzíni og tóbaki, eftirlit með fjármagnstilfærslum til erlendra banka og stöðvun vsk-svindls.

Engar haldbærar tillögur um umbætur liggja enn fyrir frá Grikkjum - unnið dag og nótt vegna ótta við greiðsluþrot

Síðdegis mánudaginn 30. mars höfðu evru-ráðherrahópnum og þríeykinu ekki enn borist tillögur grísku ríkis­stjórnar­innar um ráðstafanir til að fullnægja skilyrðum til útgreiðslu á lánsfé svo að bjarga megi Grikklandi frá greiðsluþroti. Ljóst er að niðurstaða um fyrir­greiðslu til Grikkja fæst ekki fyrr...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS