Mario Draghi, forseti bankastjórnar Seðlabanka evrunnar (SE), sagði miðvikudaginn 18. mars að það væri „ósanngjarnt“ að segja bankann helstu uppsprettu niðurskurðar og aðhalds í Evrópu eins og mótmælendur sem hafa ráðist að nýjum höfuðstöðvum bankans gera.
Við athöfn í tilefni þess að bankinn er að flytja í nýja tvíburaturna í Frankfurt sagði Draghi að bankinn drægi nú að sér þessa neikvæðu athygli þeirra sem hafa fengið nóg af ástandinu vegna þess að hann hefði gegnt lykilhlutverki við lausn á skuldakreppu evrunnar. Hann sagði:
„Þessar ásakanir eru næsta ósanngjarnar – aðgerðir okkar hafa einmitt miðað að því að draga úr efnahagsáföllunum. Sem seðlabanki alls evru-svæðisins verðum við hins vegar að hlusta mjög náið á það sem samborgarar okkar segja.“
Miðvikudaginn 18. mars var efnt til formlegrar athafnar til að staðfesta að SE hefur flutt í tvo 185 m háa turna í austurhluta Frankfurt sem kostaði 1,3 milljarða evrur að reisa. Starfslið bankans hóf störf í byggingunum í fyrra.
Utan dyra stóðu lögreglumenn gráir fyrir járnum og héldu hundruð aðgerðasinna í skefjum. Kveikt hafði verið í bílum, grjóti var kastað en síðdegis er boðað til fjöldafundar í hjarta borgarinnar.
Var búist við að 10.000 manns kæmu víða að í Þýskalandi og Evrópu til að taka þátt í mótmælunum. Boðað er að 800 mótmælendur komi með lest frá 60 langferðabílar eru væntanlegir með þátttakendur frá 39 ólíkum borgum.
Aldrei fyrr hefur lögreglan í Frankfurt kallað út jafnmikinn liðsafla vegna mótmæla í borginni.
Heimild: AFP-fréttastofan.
Bj. Bj.
Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Klofingur meðal kristilegra í Þýskalandi vegna skuldavanda Grikkja
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði þriðjudaginn 31. mars að viðræður við Grikki um skuldamál væru svo flóknar að niðurstöðu væri ekki að vænta fyrr en undir lok apríl. Spenna vegna málsins er ekki aðeins á stjórnmálavettvangi í Grikklandi heldur einnig annars staðar á evru-svæðinu. Hefur s...
Alexis Tsipras: Ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf
„Við leitum eftir heiðarlegri málamiðlun við lánardrottna en ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf,“ sagði Akexis Tsipras, forsætisráðherra Grikkja, í ræðu í gríska þinginu í gær. Hann sagði að Grikkir hefðu lagt fyrir lánardrottna hugmyndir um að koma böndum á smygl á benzíni og tóbaki, eftirlit með fjármagnstilfærslum til erlendra banka og stöðvun vsk-svindls.
Síðdegis mánudaginn 30. mars höfðu evru-ráðherrahópnum og þríeykinu ekki enn borist tillögur grísku ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir til að fullnægja skilyrðum til útgreiðslu á lánsfé svo að bjarga megi Grikklandi frá greiðsluþroti. Ljóst er að niðurstaða um fyrirgreiðslu til Grikkja fæst ekki fyrr...