Miðvikudagurinn 22. febrúar 2012

Þýzki Bundesbank neitar kröfum um örvandi aðgerðir

11:04 Þýzki Bundesbankinn hafnar kröfum frá bæði Bandaríkjunum og Alþjóða gjaldeyris­sjóðnum um að bankinn grípi til sérstakra örvunaraðgerða í efnahagsmálum, sem fjármagnaðar væru með opinberu fé. Bankinn telur að þýzka efnahagskerfið sé svo sterkt að það muni rétta við af sjálfu sér, þótt samdráttur hafi komið fram í lok síðasta árs. Þessi afstaða Bundesbank kom fram í skýrslu, sem birt var sl.

 

Mario Monti: Ekki þörf á frekari niðurskurði-herferð gegn skattsvikum skilar auknum tekjum

Í gær Mario Monti, forsætis­ráðherra Ítalíu var bjartsýnn á fundi með ítölskum fjármálamönnum í gær að því er fram kemur á Deutsche-Welle. Hann sagði að tími niðurskurðar væri liðinn. Sá niðurskurður, sem ákveðinn var á fjárlögum fyrir þetta ár mundi duga, en hann nemur um 21 milljarði evra. Monti sagði að fjárlögin byggðu á mjög litlum hagvexti en háum lántökukostnaði.

 

Samstarf milli svæða í Noregi og Rússlandi

Mán Stafangur er eins konar olíuborg Noregs og Stafangur og Rogaland, héraðið í kringum Stafangur hafa lengi unnið sameiginlega að uppbyggingu olíuiðnaðar og tengds iðnaðar á svæðinu. Með sama hætti hafa Troms og Finnmörk lengi unnið saman og tekið upp tengsl við Norðvestur-Rússland.

 

Félagsmála­ráðherra Írlands: Seðlabanki Evrópu ber sína ábyrgð á lánabólunni í jaðarríkjum evrunnar

Sun Joan Burton, félagsmála­ráðherra Írlands, sagði á fundi í Brussel hjá Institute for International and European Affairs, að Seðlabanki Evrópu yrði að horfast í augu við og axla sinn hluta af ábyrgðinni á lánabólunni á Írlandi og í fleiri jaðarríkum evru­svæðisins. Hún sagði að þróun evrunnar hefði leitt til þess að mikið lánsfjármagn hafi flætt til Írlands.

 

Þrír finnskir bankar í skotmáli Moody´s

18. feb Þrír finnskir bankar eru í hópi þeirra 114 evrópskra banka, sem eiga á hættu að Moody´s lækki lánshæfismat þeirra. Þetta kemur fram í finnska dagblaðinu Helsingin Sanomat. Þeir finnsku bankar, sem um er að ræða eru: Sampo Bank, Pohjola Bank og Nordea. Sampo Bank er dóttur­fyrirtæki Danske Bank í Finnlandi og Eistlandi.

 

Hluta­bréfverð sveiflast í takt við fréttir frá Grikklandi

17. feb Hlutabréfa­markaðir hafa sveiflast upp og niður undanfarna daga fyrst og fremst eftir því hvaða fréttir berast frá Grikklandi þá stundina. Frá því síðdegis í gær hafa borizt fréttir um að Þjóðverjar, Hollendingar og Finnar séu að linast í neikvæðri afstöðu sinni til lánveitinga til Grikkja og það hefur dugað mörkuðum síðasta sólarhringinn til þess að stefna upp á við. Um kl.

 

Danmörk: Átta danskir bankar meðal þeirra 114 sem eru á lista Moody´s

16. feb Átta danskir bankar standa frammi fyrir lækkun á lánshæfismati, sem Moody´s hefur boðað að hugsanlega verði hjá 114 evrópskum fjármálafyritækjum. Þetta kemur fram í Berlingske Tidende í dag. Blaðið segir að bankarnir átta séu: Danske Bank, DLR Kredit, Jyske Bank, Nordea Bank Danmark, Ringkjöbing, Landbobank, Spar Nord Bank, Sydbank og Nykredit.

 

Vinsældir Svalbarða meðal ferðamanna aukast

15. feb Vinsældir Svalbarða sem ferðamannastaðar eru að aukast skv. fréttum Barentsobserver. Á árinu 2011 voru seldar gistinætur þar 85000 og hafði fjölgað um 5700 frá árinu áður. Það eru þó fyrst og fremst Norðmenn, sem eru forvitnir um Svalbarða. Um 78% ferðamanna, sem þangað koma eru Norðmenn. Í hópi útlendinga eru Svíar og Bretar flestir en Þjóðverja og Danir fylgja fast á eftir.

 

Spiegel: Ákvörðun Moody´s áfall fyrir evru­svæðið og „sjokk“ fyrir brezka ráðamenn

14. feb Þýzka tímaritið Der Spiegel segir í morgun að niðurstaða Moody´s, sem sagt er frá í fréttum Evrópu­vaktarinnar í dag um lækkun á lánshæfismati nokkurra evruríkja og aðvörun til Bretlands, Frakklands og Austurríkis sé áfall fyrir evru­svæðið og „sjokk“ fyrir brezka ráðamenn. Spiegel segir líka að viðvörunin til Breta hafi komið fjárfestum á óvart.

 

Bandaríkin: Aukin eftirspurn kallar á aukinn innflutning

13. feb Bandaríkjamenn juku innflutning sinn mjög á síðasta ári skv. nýjum tölum, sem birtar voru á föstudag. En jafnframt reyndist innflutningur nema 600 milljörðum dollara umfram útflutning. Aukin eftirspurn í Bandaríkjunum kallaði á mesta innflutning í 3 ár. Innflutningur hefur aukizt um 9% frá árinu 2010 en viðskiptahallinn hefur jafnframt aukizt.

 

Bloomberg vinnur á opnu svæði-Hvers vegna ekki Jóhanna og Jón Gnarr?

12. feb Gillian Tett, hinn heimskunni blaðamaður á Financial Times, skrifar athyglisverða grein í blað sitt nú um helgina um opin og lokuð vinnu­svæði og rekur þróun þeirra langt aftur í tímann. Tilefnið er að hún fór í heimsókn til Bloomberg, borgar­stjóra New York borgar og uppgötvaði þá, að borgar­stjórinn sjálfur vinnur á opnu svæði ásamt miklum fjölda samstarfsmanna sinna.

 

Reuters: Obama vill lækka skatta á fyrirtæki í Bandaríkjunum

11. feb Reuters-fréttastofan segir frá því í morgun, að Obama Bandaríkja­forseti undirbúi nú tillögur um verulega lækkun skatta á fyrirtæki en þeir eru nú 35%. Fyrir allmörgum mánuðum hafði Timothy Geithner, fjármála­ráðherra Bandaríkjanna, orð um að eðlilegra væri að skattar á fyrirtæki í Bandaríkjunum væru ...

 

Rússar byggja 10 ný herskip m.a. til eftirlitsstarfa á norðurslóðum

10. feb Rússar eru að taka i notkun eða byggja 10 ný herskip til þess að sinna eftirliti bæði í Norðurhöfum og annars staðar. Um er að ræða minni tegund af herskipum, korvettum og freigátum á hermáli, sem hins vegar eru að sögn Rússa betur búin en sambærileg skip, sem aðrar þjóðir nota í þessu skyni. Flest skipanna eru byggð í skipasmíðastöð í Pétursborg. Frá þessu er sagt í BarentsObserver.

 

Gífurleg aukning á flutningum á norðausturleiðinni í sumar

9. feb Skipaflutningar um norðausturleiðina milli Atlantshafs og Kyrrahafs munu nema um 1,5 milljónum tonna í sumar skv. því, sem fram kom í ræðu Yuri Chuykov, sem stjórnar efnahagsþróun á Murmansk­svæðinu á ráð­stefnu í Kirkenes í Noregi. Á síðasta ári námu þessir flutningar um 820 þúsund tonnum og á árinu 2010 um 111 þúsund tonnum. Þetta er gífurleg aukning á skömmum tíma.

 

Hugo Dixon: Vinsælt að skamma bankamenn

8. feb Maður heitir Hugo Dixon. Hann var lengi einn af höfundum Lex-dálksins í Financial Times. Síðar stofnaði hann eigin fjölmiðil á vefnum, sem nefndist BreakingViews og sérhæfði sig í fréttum og umfjöllun um fjármála­markaði og viðskiptalíf. Reuters tók þann vef síðan yfir en Hugo Dixon starfar við hann á vegum hinna nýju eigenda.

 

Lækkun á mörkuðum um allan heim

7. feb Síðasta sólarhringinn hafa hlutabréfa­markaðir um heim allan stefnt niður á við.

 

Baugspennar yddaðir vegna frétta um 77 milljarða tap lífeyris­sjóða á Baugsviðskiptum - viðskiptin ná ekki inn á ratsjá Guðmundar Andra

6. feb Kristín Þorsteins­dóttir, fyrrverandi fréttakona og starfsmaður Baugs, segir í Fréttablaðinu 6. febrúar: „Drögum úr lög­reglurannsóknar- og dómstólaþrasi, sem er allt að drepa úr heift og leiðindum. Verjum kröftunum þess í stað í að átta okkur á hvað fór úrskeiðis í raun og veru og fáum til þess...

 

ESB reynir að afla skatti á fjármagnstilfærslur aukins fylgis

5. feb Framkvæmda­stjórn ESB reynir nú að setja hugmyndir um nýjan skatt á fjármagnstilfærslur í betra ljós en þær hafa verið. Til marks um það er grein, sem birtist eftir Algirdas Semeta, þann fulltrúa í framkvæmda­stjórninni, sem hefur með skattheimtu að gera, í nokkrum evrópskum blöðum sl. fimmtudag.

 

Ímyndarstríð bankanna

4. feb Það er athyglisvert að fylgjast með því ímyndarstríði, sem fram fer á milli nýju bankanna, sem miðar að því að hreinsa af þeim skugga fortíðarinnar og gengur út á að sýna hver standi sig bezt í því.

 

Alvarlegar truflanir á gasi frá Rússlandi

3. feb Mörg Evrópu­ríki hafa orðið fyrir því síðustu daga að gassendingar frá Rússlandi hafa stórminnkað.

 

Snjóhúsið mikla í Kirkenes kallar á ferðamenn frá Kína og Rússlandi

2. feb Kirkenes er lítill bær, sem stendur alveg við landamæri Noregs og Rússlands. Að koma þangað að vetri til og þá ekki sízt í desember er ævintýri líkast. Í þeim mánuði ár hvert er byggt mikið snjóhús í Kirkenes, eins konar snjóhótel. Það bráðnar svo í apríl en byggt aftur í desember.

 

Störfum fjölgar í Þýzkalandi

1. feb Atvinnuleysi hefur nú minnkað þrjá mánuði í röð í Þýzkalandi og munurinn á atvinnuástandinu þar og í öðrum evruríkjum verður stöðugt meira áberandi. Í janúarmánuði fækkaði atvinnulausum í Þýzkalandi um 34 þúsund og atvinnuleysi er nú 6,6% samanborið við 6,8% í desember.

 

Bankamenn afsala sér bónusum og kaupaukum

31. jan Bankaráð Landsbankans hefur áhyggjur af launakjörum banka­stjóra síns. Um fátt er nú meira rætt í nálægum löndum en launamál bankamanna. Hver á fætur öðrum afsala æðstu starfsmenn brezkra banka sér bónusum og öðrum kaupaukum vegna gífurlegrar reiði almennings.

 

Neytendur eru ekki hugsunarlaus hjörð-þeir eiga rétt á upplýsingum

30. jan Ný skýrsla Samkeppnis­eftirlits um verðlag frá birgjum til matvöruverzlana er gagnleg en kemur ekki á óvart. Hún stuðlar hins vegar að auknu gagnsæi á þessum markaði. En jafnframt vaknar sú spurning, hvort stór­markaðir geti ekki sjálfir lagt sitt af mörkum til þess að auðvelda viðskiptavinum sínum skilning á verðþróun og vöruframboði á þessum markaði.

 

Davos: Þriðja heims ríki kalla eftir erlendum fjárfestingum

29. jan Þriðja heims ríkin hafa vakið athygli á ráð­stefnunni í Davos að sögn þýzku fréttastofunnar Deutsche-Welle, sem segir að þau komi þar fram af miklu sjálfstrausti. Brasilía hefur lagt mikla áherzlu á að kynna þá möguleika, sem þar er að finna til fjárfestinga en hagvöxtur er nú meiri í Brasilíu en í nokkru öðru landi í Rómönsku Ameríku.

 

Evrópa: Lækkandi markaðir og sviptingar í viðskiptalífi

28. jan Fjármála­markaðir stefndu yfirleitt niður á við í gær.

 

Rússneskum ferðamönnum til Noregs fjölgar-tækifæri fyrir íslenzka ferðaþjónustu?

27. jan Mikil aukning er á rússneskum ferðamönnum til Noregs að því er fram kemur á BarentsObserver í dag. Þeir sækjast eftir veiðiferðum, ferðum um Norður-Noreg og norsku firðina og heimsóknum til Oslóar. Nú er stefnt að beinu leiguflugi frá Rússlandi til Tromsö í Norður-Noregi.

 

Norwegian kaupir 222 nýjar flugvélar-hefur náð markaðshlut­deild frá SAS og Finnair

26. jan Norska flug­félagið Norwegian er í mikilli sókn og hefur nú gert samninga um kaup á 222 nýjum flugvélum á næstu árum. Um er að ræða 122 flugvélar af gerðinni Boeing 737MAX8 og 100 Airbus af gerðinni A320neo auk kaupréttar á 50 slíkum til viðbótar. Þessi risapöntun hefur vakið mikla athygli og er mesta fjárfesting, sem ráðizt hefur verið í af norsku fyrirtæki utan olíugeirans.

 

Stærsti kjarnorkuknúni ísbrjótur heims siglir frá Murmansk til Pétursborgar-veldur áhyggjum í Noregi

25. jan Stærsti kjarnorkuknúni ísbrjótur heims leggur í dag af stað frá Murmansk í Norður-Rússlandi til Finnlandsflóa en þar verður ísbrjóturinn í 100 daga við að brjóta ís og greiða skipum leið til og frá Pétursborg. Ísbrjóturinn mun sigla nokkrar sjómílur undan ströndum Noregs.

 

Seðlabanki Spánar spáir alvarlegum samdrætti í ár

24. jan Seðlabanki Spánar spáir alvarlegum samdrætti í spænsku efnahagslífi á þessu ári að sögn spænska dagblaðsins El País í morgun.

 

Heildarskuldir Breta 507% af vlf-Bandaríkjamanna 279%

23. jan Heildarskuldir Breta þ.e. opinberar skuldir og einkaskuldir hafa hækkað úr 487% af vergri landsframleiðslu í 507% frá því að fjármálakreppan hófst árið 2008 að því er fram kemur í Daily Telegraph í dag og byggir á skýrslu frá McKinsey Gobal Institute. Á sama tima hafa heildarskuldir Bandaríkjanna læ...

 

ESB-aðildarsinnar fá áfall vegna umræðna um innflutt kók frá Spáni

20. jan Nú er komið í ljós samkvæmt nýjum könnunum að þeim fjölgar sem vilja að Íslendingar standi utan við Evrópu­sambandið og jafnframt fækkar þeim sem vilja að Íslendingar taki upp evru. Ef litið er til kannanna er eina haldreipi ESB-aðildarsinna að fleiri vilji halda áfram viðræðum til að fá málið í þjóðar­atkvæða­greiðslu en hinir sem segjast ekki vilja fara þá leið.

 

Stór olíufélög vilja opna skrifstofur í Norður-Noregi

20. jan Nokkru stór olíufélög hafa lýst áhuga á að opna svæðisskrifstofur í Norður-Noregi að því er fram kemur á BarentsObserver. Fréttin er byggð á ummælum formanns atvinnuvega­samtaka í Tromsö Roar Kloe. Hann hefur ekki viljað upplýsa um hvaða félög sé að ræða en segir að í þeirra hópi séu stór olíufélög.

 

Bretar: Draga úr matarinnkaupum og benzíneyðslu til að eiga fyrir afborgunum og húsaleigu

19. jan Daily Telegraph segir, að rannsóknir sýni, að um 16 milljónir Breta hafi dregið úr matarinnkaupum til þess að eiga fyrir afborgunum af húsnæðislánum eða fyrir húsaleigu. Hið sama eigi við um 10 milljónir manna, sem hafi dregið úr benzíneyðslu í sama skyni. Þetta þýði að þriðji hver Breti hafi gripið til slíkra aðgerða.

 

Gasleiðsla frá Barentshafi til Evrópu?

18. jan Í Noregi er nú rætt um það, hvort leggja eigi gasleiðslu neðansjávar frá Barentshafi til Evrópu og að slík gasleiðsla yrði tilbúin í kringum 2020. Tillögur um slíka gasleiðslu komu fyrst fram á síðasta ári. Þær eru þó taldar byggjast á því að fram kom skýr vilji af hálfu Evrópu­ríkja um kaup á gasi f...

 

Norskir olíusér­fræðingar með stjörnur í augum eftir nýjar rannsóknir

17. jan Nýjar rannsóknir Norðmanna á þeirra hlut á landgrunninu í Barentshafi valda því að sér­fræðingar eru með stjörnur í augum, sagði Bente Nylund, for­stjóri Norwegian Petroleum Directorate á kynningarfundi í gær.

 

Kók frá Spáni - rangfærslur Já Íslands - áhugaleysi RÚV

16. jan Nýlega greip N1 til þess ráðs að flytja inn kóka kóla frá Spáni vegna óánægju með verðlagningu Vífilfells hér á landi. Þetta er spennandi tilraun til að sporna gegn óhóflegri verðlagningu. Hún kann að varpa ljósi á framtíðarþróun takist að grafa undan íslenskum landbúnaði með aðild að Evrópu­sambandinu. Sema Erla er stjórnmála­fræðingur sem útskrifaðist með meistaragráðu í Evrópu­fræðum (e.

 

Kínverski gjaldmiðillinn sækir á sem annar helzti gjaldmiðill í alþjóða­viðskiptum

16. jan Ýmis merki eru um, að yuaninn, kínverski gjaldmiðillinn sé að verða annar af tveimur helztu gjaldmiðlum, sem notaðir eru í viðskiptum þjóða í milli. Um þetta er fjallað á Deutsche-Welle, sem bendir á að samkomulag á milli Kína og Japans um að viðskipti á milli þessara landa fari fram í yuan en ekki dollar hafi lykilþýðingu í þessu samhengi.

 

Viðskiptaveldi Tony Blair vekur vaxandi athygli í Bretlandi

15. jan Viðskiptaveldi Tony Blair, fyrrum forsætis­ráðherra Bretlands og fyrrum leiðtoga Verkamanna­flokksins vekur sívaxandi athygli heima fyrir en um það hefur áður verið fjallað hér á Evrópu­vaktinni. Í Sunday Telegraph í dag segir að Tony Blair sé orðinn einn af 2000 auðugustu mönnum í Bretlandi.

 

Fækkun á rit­stjórn Fréttablaðsins skiljanleg-Búið að loka Urban í Kaupmannahöfn

14. jan Fækkun á rit­stjórn Fréttablaðsins þarf engum að koma á óvart. Krepputímar eru ekki hagstætt rekstrarumhverfi fyrir ókeypis blöð. Auglýsinga­markaðurinn dregst saman og verð á auglýsingum lækkar. Þar að auki hefur auglýsingamiðlum fjölgað mjög með tilkomu netmiðla.

 
 
Í pottinum

Athyglisverð grein Einars K. Guðfinnssonar ýtir undir kröfur um rannsókn á seinni einkavæðingu bankanna

Einar K. Guðfinnsson, alþingis­maður, skrifar mjög athyglisverða grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann færir sterk rök að því að mikil mistök hafi verið gerð við kaup nýju bankanna á eignum gömlu bankanna og að þær hafi verið keyptar of háu verði án þess að nokkrir fyrirvarar hafi verið gerðir. Þi...

 
Eftir Björn Bjarnason Pistill

Meirihluti alþingis skilar auðu um stjórnar­skrárbreytingar - kaupir Þór Saari til að bjarga ríkis­stjórninni

Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnar­skrá 29. júlí 2011. Þing­nefnd, stjórnskipunar- og eftirlits­nefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sér­fræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...

Mest lesið
 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS