Stærsti kjarnorkuknúni ísbrjótur heims leggur í dag af stað frá Murmansk í Norður-Rússlandi til Finnlandsflóa en þar verður ísbrjóturinn í 100 daga við að brjóta ís og greiða skipum leið til og frá Pétursborg.
Ísbrjóturinn mun sigla nokkrar sjómílur undan ströndum Noregs. Ferð hans veldur norskum stjórnvöldum áhyggjum að sögn BarentsObserver, ekki vegna veðurfars á siglingaleiðinni heldur vegna þess kjarnorkubúnaðar, sem er um borð í ísbrjótinum.
Í desember varð eldsvoði í kjarnorkuknúnum kafbát norður af Murmansk, sem leitt hefur til verulegra umræðna í Noregi um þær hættur, sem kunni að stafa af kjarnorkuknúnum rússneskum skipum á ferð undan Noregsströndum og hættu af geislavirkni frá þeim.
Þess vegna munu Norðmenn fylgjast vel með ferð ísbrjótsins, sem fer svo um Eyrarsund og Eystrasalt til Pétursborgar.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Um sæstrengi til aflflutnings á milli Íslands og Evrópu
„Eitthvað annað“ í umræðunni um atvinnusköpun á Íslandi hefur nú orðið sér rækilega til skammar, þar sem það hefur reynzt algerlega merkingarlaust og gagnslaust í framkvæmd. Því var aldrei ætlað annað hlutverk en að afvegaleiða umræðuna frá háu þjóðhagslegu notagildi stóriðju fyrir íslenzkt atvinnulíf.
Þýzki Bundesbank neitar kröfum um örvandi aðgerðir
Þýzki Bundesbankinn hafnar kröfum frá bæði Bandaríkjunum og Alþjóða gjaldeyrissjóðnum um að bankinn grípi til sérstakra örvunaraðgerða í efnahagsmálum, sem fjármagnaðar væru með opinberu fé. Bankinn telur að þýzka efnahagskerfið sé svo sterkt að það muni rétta við af sjálfu sér, þótt samdráttur hafi komið fram í lok síðasta árs. Þessi afstaða Bundesbank kom fram í skýrslu, sem birt var sl.
Mario Monti: Ekki þörf á frekari niðurskurði-herferð gegn skattsvikum skilar auknum tekjum
Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu var bjartsýnn á fundi með ítölskum fjármálamönnum í gær að því er fram kemur á Deutsche-Welle. Hann sagði að tími niðurskurðar væri liðinn. Sá niðurskurður, sem ákveðinn var á fjárlögum fyrir þetta ár mundi duga, en hann nemur um 21 milljarði evra. Monti sagði að fjárlögin byggðu á mjög litlum hagvexti en háum lántökukostnaði.
Samstarf milli svæða í Noregi og Rússlandi
Stafangur er eins konar olíuborg Noregs og Stafangur og Rogaland, héraðið í kringum Stafangur hafa lengi unnið sameiginlega að uppbyggingu olíuiðnaðar og tengds iðnaðar á svæðinu. Með sama hætti hafa Troms og Finnmörk lengi unnið saman og tekið upp tengsl við Norðvestur-Rússland.
Félagsmálaráðherra Írlands: Seðlabanki Evrópu ber sína ábyrgð á lánabólunni í jaðarríkjum evrunnar
Joan Burton, félagsmálaráðherra Írlands, sagði á fundi í Brussel hjá Institute for International and European Affairs, að Seðlabanki Evrópu yrði að horfast í augu við og axla sinn hluta af ábyrgðinni á lánabólunni á Írlandi og í fleiri jaðarríkum evrusvæðisins. Hún sagði að þróun evrunnar hefði leitt til þess að mikið lánsfjármagn hafi flætt til Írlands.