Miðvikudagurinn 22. febrúar 2012

Rússneskum ferðamönnum til Noregs fjölgar-tækifæri fyrir íslenzka ferðaþjónustu?


Styrmir Gunnarsson
27. janúar 2012 klukkan 09:31
Nordnorge og kynning á sjónvarpsferðinni með því. Sjá Hurtigruten.no

Mikil aukning er á rússneskum ferðamönnum til Noregs að því er fram kemur á BarentsObserver í dag. Þeir sækjast eftir veiðiferðum, ferðum um Norður-Noreg og norsku firðina og heimsóknum til Oslóar. Nú er stefnt að beinu leiguflugi frá Rússlandi til Tromsö í Norður-Noregi.

Á árinu 2011 varð 19% aukning á vegabréfsáritunum, sem sendiráð Noregs í Moskvu veitti rússneskum ferðamönnum en að auki koma margir þeirra til Noregs á finnskum áritunum. Samtals veitti sendiráðið í Moskvu 31.551 vegabréfsáritun á síðasta ári en í heild veitti sendiráðið og ræðismannsskrifstofur Noregs í Pétursborg og Murmansk 56.280 vegabréfsáritanir.

Margt er líkt með náttúru Norður-Noregs og Íslands. Þessar fréttir vekja upp spurningar um hvort Rússland sé ókannaður kostur fyrir íslenzka ferðaþjónustu.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Bjarna Jónsson Pistill

Um sæstrengi til aflflutnings á milli Íslands og Evrópu

„Eitthvað annað“ í umræðunni um atvinnusköpun á Íslandi hefur nú orðið sér rækilega til skammar, þar sem það hefur reynzt algerlega merkingarlaust og gagnslaust í framkvæmd. Því var aldrei ætlað annað hlutverk en að afvegaleiða umræðuna frá háu þjóðhagslegu notagildi stóriðju fyrir íslenzkt atvinnulíf.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Þýzki Bundesbank neitar kröfum um örvandi aðgerðir

Þýzki Bundesbankinn hafnar kröfum frá bæði Bandaríkjunum og Alþjóða gjaldeyris­sjóðnum um að bankinn grípi til sérstakra örvunaraðgerða í efnahagsmálum, sem fjármagnaðar væru með opinberu fé. Bankinn telur að þýzka efnahagskerfið sé svo sterkt að það muni rétta við af sjálfu sér, þótt samdráttur hafi komið fram í lok síðasta árs. Þessi afstaða Bundesbank kom fram í skýrslu, sem birt var sl.

Mario Monti: Ekki þörf á frekari niðurskurði-herferð gegn skattsvikum skilar auknum tekjum

Mario Monti, forsætis­ráðherra Ítalíu var bjartsýnn á fundi með ítölskum fjármálamönnum í gær að því er fram kemur á Deutsche-Welle. Hann sagði að tími niðurskurðar væri liðinn. Sá niðurskurður, sem ákveðinn var á fjárlögum fyrir þetta ár mundi duga, en hann nemur um 21 milljarði evra. Monti sagði að fjárlögin byggðu á mjög litlum hagvexti en háum lántökukostnaði.

Samstarf milli svæða í Noregi og Rússlandi

Stafangur er eins konar olíuborg Noregs og Stafangur og Rogaland, héraðið í kringum Stafangur hafa lengi unnið sameiginlega að uppbyggingu olíuiðnaðar og tengds iðnaðar á svæðinu. Með sama hætti hafa Troms og Finnmörk lengi unnið saman og tekið upp tengsl við Norðvestur-Rússland.

Félagsmála­ráðherra Írlands: Seðlabanki Evrópu ber sína ábyrgð á lánabólunni í jaðarríkjum evrunnar

Joan Burton, félagsmála­ráðherra Írlands, sagði á fundi í Brussel hjá Institute for International and European Affairs, að Seðlabanki Evrópu yrði að horfast í augu við og axla sinn hluta af ábyrgðinni á lánabólunni á Írlandi og í fleiri jaðarríkum evru­svæðisins. Hún sagði að þróun evrunnar hefði leitt til þess að mikið lánsfjármagn hafi flætt til Írlands.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS