Föstudagurinn 18. maí 2012

Markaðir gefa ekki skýra vísbendingu


Styrmir Gunnarsson
23. febrúar 2012 klukkan 09:34

Fjármálamarkaðir gefa ekki skýra vísbendingu um hvað er að gerast þessa dagana. Þegar markaðir opnuði í Evrópu í morgun virtust þeir stefna niður á við en um kl. 9.30 að íslenzkum tíma hafði sú þróun snúizt við og þá var staðan þessi:

London hafði hækkað um 0,46%, París um 0,44% og Frankfurt um 0,75%.

Í Asíu lækkaði Hong Kong í nótt um 0,78% en Shanghai hækkaði um 0,25% og Japan um 0,44%.

Í Bandaríkjunum lækkaði Dow Jones í gær um 0,21% og Nasdaq um 0,52%.

Af þessu má sjá að markaðir eru ekki á einu máli um hvert stefnir. Og svona hefur þetta verið að undanförnu. Auðvitað skiptir fleira máli en staðan á evrusvæðinu þó að hún vegi þungt. En eins og fram kemur í fréttum Evrópuvaktarinnar í dag virðist pólitísk óvissa í tengslum við aðstoðina við Grikki frekar að aukast en minnka bæði í Þýzkalandi og í Frakklandi.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Svein Eldon Pistill

Raunir Nokia - lifir fyrirtækið út árið?

Nokia er ekki lengur stærsti farsíma-framleiðandi heims. Undanfarin fjögur ár hefur fyrirtækið misst markaðshlut­deild, mest til Samsung og Apple. Samsung framleiðir nú fleiri farsíma en Nokia. Hlut­deild Nokia af farsíma­markaði heimsins er talin vera tæp 30%, en var tæp 40% þegar hún var mest. Taprekstur er nú á fyrirtækinu og framtíð þess óljós.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Er Kýpur á sömu leið og Ísland fyrir hrun?-Eru bankarnir að hrynja?

Áhugamenn um það, sem er að gerast í Evrópu ættu að fylgjast með því, sem er að gerast á Kýpur næstu vikur og mánuði. Í gærkvöldi talaði Stephen Sackur, umsjónarmaður HardTalk þátta BBC við mann að nafni Michalis Sarris, sem er fyrrverandi fjármála­ráðherra Kýpur og nú stjórnar­formaður annars stærsta banka lýðveldisins.

Mikill hagvöxtur í Rússlandi

Hagvöxtur er mikill í Rússlandi um þessar mundir eða 4,9% á fyrsta fjórðungi þessa árs að því er fram kemur í BarentsObserver. Rússnesk stjórnvöld höfðu áætlað að hagvöxtur yrði um 4% á fyrstu þremur mánuðum ársins. Neyzla hefur aukizt um 7-8% fyrst og fremst vegna launahækkana og aukinnar samneyzlu.

Tillögur Barnier: Afstaða hluthafa verði bindandi um launakjör stjórnenda

Evrópu­sambandið vinnur nú að því að setja nýjar reglur um fyrirtæki, sem skráð eru á hlutabréfa­markaði í Evrópu, sem hafa m.a. í för með sér að afstaða hluthafa til launakjara og bónus­greiðslna verður bindandi fyrir stjórnendur en í mörgum tilvikum eru atkvæða­greiðslur á hluthafafundum einungis ráðg...

Moody´s lækkar lánshæfismat 26 ítalskra banka

Moody´s hefur lækkað lánshæfismat 26 ítalskra banka um eitt til fjögur stig. Í febrúarmánuði sl. tilkynnti lánshæfismats­fyrirtækið að það mundi taka lánshæfismat 114 evrópskra banka til enduskoðunar. Í hópi þeirra banka, sem hafa fengið lægra lánshæfismat er UniCredit, sem er stærsti banki Ítalíu og Intesa, sem er næst stærsti bankinn. Báðir voru lækkaðir um eitt stig.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS